fimmtudagur, september 28, 2006

Landafræðilalli

Lárus hafði rétt fyrir sér í gær og kom það næturverði ekki á óvart. Flestir þóttust standa klárir á kaupstaðnum Bolungarvík, feikifagur staður sem ég mundi þó ekki fyrir alla muni vilja búa á.Í ag er spurt um heiti á einhverju????????
Lárus er líklegur enda frægur fyrir landafræðiþekkingu. Þó tjáði drengurinn mér það að hann hefði ekki ferðast innanlands lengra en til Hveragerðis síðan á Halló Akureyri ´99 eða ´00.. Að sjálfssögðu fær hann mínus í kladdann fyrir slíkt.
Næturvörður hefur unun af landinu sínu enda uppalinn í slorinu á Bolungarvík. Síðast í gær skellti ég mér til Húsafells til tilbreytingar og deginum áður skoðaði ég mig um í Kerlingafjöllum sem og á Hveravöllum. Fyrir rétt rúmri viku ók ég til Þingvalla og lá við sáðfalli enda fátt jafn fagurt og Þingvellir að hausti. Þar hitti ég Bubba og.........
Þann dag í dag er næturvörður á móti Kárahnjúkavirkjun en svo hefur ekki alltaf verið eða ég allavega var ekkert að spá of mikið í málin. Gaman væri að fá álit sjénísins Lalla á þeirri umdeildu virkjun. Þess má geta að grunnskólaganga Lalla var allt annað en glæsileg og hefði ég ekki sett pening undir það að hann mundi valsa um með BS próf í annari hendi og atvinnutilboð í hinni. Hans sérgrein var að þekkja Camel og Winston í sundur á bragðinu. Var nokkuð góður í því. hann reykti ávallt Camel Filters. Næturverði gékk feikivel að fóta sig í lífinu þar til hann kynntist Lárusi. Jú jú Lárus stundaði íþróttir af kappi en hafði unun af að svolgra í sig landa þess á milli og leggja inn gott orð fyrir sjálfan sig við hitt kynið. Hitt kynið hélt aldrei vatni yfir ljósum lokkunum. Eftir á að líta er ekki furðulegt að ungur næturvörður hafi litið upp til drengsins sem kynnti honum fyrir fullorðins íþróttunum að reykja og drekka með nokkrar stelpur hangandi í sér. Reyndar tel ég að leið mín hefði ávallt legið í átt til mikilla skemmtana. Samanborið við flesta mína vini er ég bindindismaður og gaman að segja frá því að Lárus hefur farið svipaðar slóðir í skemmtanalífinu en hann verður ávallt vinsæll hjá hinu kyninu enda glæsilegur. Nægir þar að nefna eina af könnunum næturvarðar sem hlýtur að útliti ákveðinna drengja. Þar ber Lárus höfuð og herðar yfir félaga sína og skyldi engan undra. Um Lárus gæti ég skrifað í alla nótt en þori því ekki. Þó ætla ég að gerast svo djarfur að skora á drenginn að ferðast um Ísland, hætta þessu flandri útum allan heim og skoða staði einsog næturvörður spyr um. Það mundi ylja mér um hjartarætur að sjá glæsilegan Lárus inná helvítis myndinni.

miðvikudagur, september 27, 2006

September

Samkvæmt útreikningum næturvarðar hefur september verið töluvert betri en júní hvað veður snertir. Tel ég þetta ekki einsdæmi þetta árið. Jú jú það er heitara í júní en engan veginn heppilegt veður til útiveru. Vil ég meina að september einsog hann hefur verið uppá síðkastið sé eitthvert besta veður sem líkami getur verið í, rómantík upp um alla veggi og myrkur þegar það á við. Það má taka það inní reikningana að frjókornaofnæmi gerir ekki vart við sig í september mánuði. Gallinn við september er sá að líkja má honum við sunnudag. Lognið á undan storminum, já eða leiðindunum. Því kvíðir næturvörður næsta sunnudags, helgin búin og september farinn. Takið eftir því að veðrið mun taka stakkaskiptum sem og líðan fólks.
Spurning dagsins er af íslensku landafræðibergi brotin:
Spurt er um kaupstað? Líklega er myndin tekinn í september því ekki er alltaf jafn friðsælt á þessu bæjarstæði.

fimmtudagur, september 21, 2006

1 FF Hampstead Heath Harriers 44
2 JOHNNY 25
3 FC STOCKTON 24
4 Næturverðirnir 23
5 Love-You-Longtime 20
6 Mazda FC 19
7 FC Maskínan 16
8 banda-lið 13
9 Lucky13 9

Ég segi nú bara einsog Benitez: " Þetta er rétt að byrja og þeir frá hampstead munu tapa stigum". Það verður nú samt að gefa Birni það að hann hefur innsæi. Eitthvað segir mér samt að hann eigi eftir að skíta uppá bak.
Mig minnir að þessi kafli keppninnar sé til áramóta og því er keppnin rétt að byrja.

sunnudagur, september 17, 2006

Björn

Björn er alltaf jafn snjall. Ekki það þetta var nánast gefið. Sjá:


XXXXXX-XXXXXXX

Hann sem sagt giskaði á þetta!!

föstudagur, september 15, 2006

Dýr

Spurt er um dýrategund??? Þetta eintak er ansi ungt og því gæti þetta vafist fyrir mönnum. Spurninguna tileinka ég Hödda365 en hann er þekktur fyrir velvild í garð dýra.
  • Lárus leggur golfvallarstarf sitt á hilluna eftir daginn í dag og ætlar hann að reyna fyrir sér á sviði hagfræðinnar. Við á Sæbrautinni óskum kauða góðs gengis.
  • Óli Stef, Hrannar og Jói Gé hafa greitt staðfestingagjald fyrir svokallaða Kákasus reisu sína. Þetta var þá ekki allt í nösunum á þeim.
  • Diddi hefur snúið sólarhringnum við sem sést best á tímasetningu kommentanna sem hann lætur frá sér.
  • Nick Cave.
  • Eftir leiki helgarinnar í enska boltanum verða Chelsea með tvö töp eftir fimm leiki. Það veit á gott fyrir framhaldið.
  • Næturvörður snæddi hádegisverð með Salsola Timo í hádeginu. Geri aðrir betur.
  • Bróðir næturvarðar fékk bílpróf í gær. Ekki lítill lengur.
  • Hef sett mér það markmið í lífinu að byrja aftur á starfskynningunum og kominn með alveg eitrað fórnarlamb til að byrja með og svo mun Höddi liggja í valnum eftir það.

fimmtudagur, september 14, 2006

Næturvarsla

Starf næturvarða er erfitt, það vita flestir. Ég taldi mig lengi vera með betri næturvörðum í borginni þrátt fyrir ungan aldur og litla menntun á sviði vörslu.
Hingað gékk inn blaðburðarkona rétt í þessu. Hún talar mjög mikið. Ég fíla hana þrátt fyrir að enginn þoli hana. Kannski að fólk með smá svefngalsa kunni betur við blaðrandi fimmtugar kjellur heldur en hinn upptekni Íslendingur. Hún tjáði mér að gamli næturvörðurinn sem var/er upplýsingafræðingur að mennt hafi lent í mörgum klípunum í starfi sínu. Mínu starfi. Eitt sinn var börnum tveimur rænt á vaktinni hans. Móðursjúk kona kom niður alls laus en fyrrv. maður hennar (útlendingur) hafði tekið börnin og flúið líf hennar.... Næturvörðurinn fór í málið og var maðurinn stöðvaður í Leifsstöð.
Einnig hafði gamli næturvörðurinn lent í því að gera að sárum ungrar konu sem hafði verið laminn af ástkærum eiginmanni sínum(Frakkar). Svo hafði hann þurft að þrífa ælu úr lyftunni og stöðvað hótelgest með ofurölva stúlku á leið uppí herbergið sitt.
Þessi maður hafði náttúrulega betri menntun en ég og gríðarlega reynslu í starfi. Sjálfur lendi ég aldrei í neinu og er svipað upptekinn og Jón Gnarr var í feikifínum næturvarðar-skets sem þeir Fóstbræður gerðu um árið, nema ég hef ekki kött til að rabba við. Reyndar kom kona inná kontor til mín um daginn og vildi hringja á leigubíl. Klukkan var 0500 á föstudegi. Hún tjáði mér að sér hefði verið nauðgað en var annars hin hressasta þannig að ég var nú ekkert að trúa henni. Svo fór hún bara sína leið og ég hugsaði ekki meira útí það. Þar komst ég þó að því að ég hef lítinn áhuga á veseni og viðbjóði. Vil frekar vera einn á vappi með sjálfum mér.
ps. Er reyndar byrjaður að laða að mér kött í nágrenninu sem heldur ekki vatni yfir sjávarafgöngum hótelsins. Hver veit nema ég eignist þarmeð lítinn, loðinn, aðkeyptan vin. Er að leita að nafni á nýja vin minn. Er með nokkur í deiglunni en hallast einna helst að nafninu Diddi... Já eða Jón Þór, þeir eru svo karlmannlegir einsog kötturinn sem eflist með hverri máltíðinni.

miðvikudagur, september 13, 2006


Sælar!!! Spurt er um kastala, ansi fagran.

Snesi.

þriðjudagur, september 12, 2006

PSV - LFC

Meistaradeildin hefur göngu sína í kvöld og er það vel. Líklegustu liðin eru að sjálfssögðu meistararnir í Barca og svo meistararnir þar á undan Liverpool. Dirk Kuyt verður í heimalandi sínu Hollandi á morgun og kæmi það mér ekki á óvart að hann muni vera munurinn á þessum liðum á morgun.
----------
Sumarið er vægast sagt búið og notaleg þunglyndis tilfinning farinn að gera vart við sig. Ég vildi að ég væri einsog Hrannar, bara þunglyndur á mánudögum. Hvað ætli gleðipillan sem Hössi notar kosti?
----------
Diddi gaf mér Renault um daginn og í gær gaf Jóhannes kokkur mér heimabíó. Ekki amalegt. Svo lánaði hann mér Harmon Kardon magnarann sinn sem ég ætla aldrei að skila. Já maður verður að bjarga sér í þessu lífi og hér eftir mun ég svífast einskis. Það er hvorteðer alltaf hægt að finna sér nýja vini.
----------
Spurningakeppni næturvarðar hefur náð botninum. Ég get svosem reynt að bæta mig en það er nú samt ólíklegt að það takist. Nú mun ég líklega ráðast í starfskynningar á nýjan leik. Höddi hefur tekið nokkuð vel í slíkt og gaman að segja frá því að menn bíða í röðum: Jói Gé, Friðgeir R., Kris-B og að sjálfssögðu handleggurinn eða gullhöndin einsog sumir kalla hann.
-----------

Spurt er um íþróttamann? feikifrægan..!
Að lokum legg ég til að Chelsea verði lagt í eyði... Allavega tapi á morgun.

sunnudagur, september 10, 2006

Benitez klikkaði, á því er ekki vafi.

Spurt er um land. Það koma nokkur til greina en þó má útiloka ófá, allavega, spurt er um land. Sá er nefnir þennan sögufræga "kastala" á nafn fær rós í hnappagatið já eða rassgatið. Svo mæli ég með þessumtengli. Þarna byrjar maður að girnast veggfóður. Átti í erfiðleikum að finna flott veggfóður á netinu en hafði gaman að þessari... Alltaf verið heitur fyrir veggfóðrum. Hef jafnvel verið að girnast að byrja með búð sem einungis selur veggfóður. Endilega tjáðu mér hvar ég finn flott veggfóður á netinu. Alltof lítið lagt uppúr veggfóðrum. Það sama á við um hárkollur. Væri gaman að skipta um hár inná milli. Tala ekki um ef maður hefði ekki hár. Þá er ég að tala um flottar og raunverulegar kollur.

föstudagur, september 08, 2006

Spurt er um tegund? Ekki undirtegund heldur tegund.















Jú auðvitað er þetta leiðinleg spurning en svona er þetta bara. Ef síðasta spurning var til bræðranna Lalla og Matta að þá hlýt ég að tileinka Hrannari þessa.
Svo vil ég minna á fantasy deildina sem einmitt Hrannar stofnaði um daginn. Nú fer hver að verða síðastur ef ekki á að missa af stigunum á laugardaginn..
Fleira var það ekki í þetta skiptið nema jú, skoðið heimasíðu Ljénsherrans hér til hægri á síðunni.

miðvikudagur, september 06, 2006

Spurt er um fjörð??

Þetta er með fegurri fjörðum í Evrópu einsog sést á myndinni enda orti Davíð Stefánsson ófá kvæðin um einmitt litla en fallega bæinn sem þar leynist. Ekki er um Fagraskóg að ræða...
"Gott er flag að fyrna sér
þó ekki sé að kominn
mátti mega byrla þér
né fönn í kaf skal sofinn"

Já líklegast spyr ég fjörð sem og bæ. Bæ
(aukastig og aukin virðing fæst fyrir að nefna heiti kvæðisins að ofan)