miðvikudagur, ágúst 16, 2006

Reptile

Sumarið er svo gott sem búið. Reyndar verður allt löðrandi í menningu á laugardaginn þannig að enn er hægt að gera eitthvað. Lalli er farinn til Rómar og Hörður er að kaupa bíl Krisby´s. Óli Stef talar ekki um annað en álfelgur og bílgræjur enda kominn í úthverfi. Gaman verður að fá update inná milli um líf Óla. Án víns spái ég honum miklum frama og gríðarlegs dugnaðar. Óli sefur mjög lítið. Hann hefur löngum minnt mig á hund. er alltaf til í tuskið. Stekkur til þegar fara á í langferð. Diddi gaf næturverði bíl í vikunni. Er ég honum þakklátur. Renault Clio ´91. Gengur illa og hefur að geyma gríðarmikið veghljóð. Var skítugur. Er allur að koma til enda kominn í hendur á þúsundþjalasmið eða hvað maður segir. Diddi fer til Danmerkur eftir tíu. Hann er kominn í nudd meðferð vegna meiðsla. Mökkur F. C. má búast við honum öflugum í september. Næturvörður sá Ísland - Spán, leiðindaleikur en gaman að sjá Garcia og Reyna. Hinir voru glataðir. Laugardalsvöllur er að stækka en heillar mig ekki. Xabi Alonzo sást ekki. Hrannar datt í það fim, fös og lau..
Spurt er um stúlku, hver er stúlkan? Hvers lensk? Hví?
Liverpool byrja í deildinni á móti Sheffield! Þeir unnu deildina í fyrra ef frá er dreginn fyrsti mánuðurinn. Hljóta því að vinna í ár. Hvað kostar SkjárSport? Björn Arnar er í einhverjum net-Liverpool klúbb. Fékk eMail frá Benitez um daginn.

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Heilbrigdin skín í gegnum andlit stúlkunar Mig grunar ad þetta se kærasta Benítes ... hun Beni-ton

Nafnlaus sagði...

þetta er einhver skíðakona frá Sviss

Nafnlaus sagði...

Þessa stúlkukind kannast ég nú við. Gæti verið að þetta sé yngri sænska prinsessan? Madaleine eða eitthvað svoleiðis.

Nafnlaus sagði...

hvad vard um þennan næturvörd er hann sofandi a verdinum ?

Nafnlaus sagði...

já Teddi er með þetta. Reyndar er hann sænskur að hluta til og kannski lítið sanngirni í gangi..
Voða sæt þessi pjattrófa samt!!!