laugardagur, júlí 01, 2006

Ísland

Maður verður nú að veita landinu sínu smá athygli eftir allt HM áhorfið. Hvað er maður að hampa Podolsky þegar maður hefur þennan fagra bæ aðeins "nokkrar" mínútur í burtu ! en hver er bærinn????

Undir liðnum hér að neðan hefur hafist deila æskuvina. Líklegast er úti um þeirra vinskap en það er nú bara einsog gengur og svo sem alltaf hægt að finna nýjan og góðan vin.
Nú er bara spurning hvort sumir nái að hreinsa nafn sitt sem sumir hafa óhreinkað eftir samtal við suma. Vonandi komumst við til botns í þessu máli í formi kommenta en næturvörður fer fram á vandað málfar og röksemi sem og einlægni. Einnig mun ég eyða kommentum sem falla mér ekki að geði.

11 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Svarið er Grundafjörður og Kirkjufell gnæfir þarna yfir Hr. Næturvörður. Ég og Kristín heimsóttum þennann útnára fyrir tveimur árum. Við gistum í unglingaherbergi í bændagistingu hinum megin við pollinn. Þetta er eitt mesta veðravíti sem ég hef kynnst enda átti ég þarna skemmtilegasta flugdrekaflug, og grillskapur var erfiður.

Varðandi kæru háttvirts Reyks um að Hampstead Heath Harriers sé í raun BBC liðið þá er því auðsvarað. BBC velur ekkert svona lið en hins vegar horfi ég á leikina á BBC og ITV, les dagblöðin, les BBC HM vefinn, spjalla við vinnufélagana (sem sumir eru miklir fagmenn í boltanum), og svo framvegis. Viskan verður því svo mikil að mér finnst oft augljóst hvaða menn á að setja í liðið mitt. England er vagga fótboltans og því er líklegt að þjálfari búsettur í landinu sé ofarlega á blaði í keppni í anda fantasy league. Egill er annars undantekningin sem sannar þessa reglu; drengurinn er á stundum með snilldar skiptingar.

Annars eru margir í deildinni okkar ekki að nýta skiptingar sem skildi og þar skilur nú aðallega á milli held ég.

Nafnlaus sagði...

Kirkjufell er nú eitt að þessum skemmtilegu. Sumir líkja við vasaútgáfa af Matterhorn í svissnesku Ölpunum. Ég kom þangað síðast í fyrra og varð að stöðva bílinn í vegkanti vegna veðurs, rosalegt að ákveða að búa þarna.

Björn, kannski þú takir að þér þjálfarastöðu innin FC Makkar? Veit ég hefði gaman af því.

Nafnlaus sagði...

Ég styð Björn í þjálfaran.
Hann er augljóslega með hæfileikana.
Annars ætla ég að uððljóstra að það var enginn annar en ég sem skrifaði undir nafni Reyksins.
Þetta var einhver nettur biturleiki sem hljóp í mig enda með allt niðrum mig í þessum leik.
Þannig að Björn er með þetta allt á snilldinni.
Sorry Björn.
Annars virðist Næturvörðurinn vera jafnoki snillingsins!!!!

Nafnlaus sagði...

Ég meina, Reykurinn er 2 stigum frá mér.
Er með allt niðrum mig
ALLT.
Hef þó beitt skiptingum grimmilega

Nafnlaus sagði...

Já ég skil ekki þetta með vífilstaðabræðurna. Vel gefnir ljóshærðir strákar en skortir allt innsæi.
Grundarfjörður er fagur en þess má geta að ungur haförn missti flugið þarna í vikunni.

Nafnlaus sagði...

Þá eru Liverpool mennirnir hjá Englandi búnir að skjóta landið sitt útúr keppninni.
Takk fyrir það!!!!

Nafnlaus sagði...

Æ-i þegiðu nafnlausa fífl.

Nafnlaus sagði...

Já ég myndi glaður koma að þjálfun Makkar með einum eða öðrum hætti. En er þó viss að agavandamál yrðu þó nokkur því ég myndi allavega fara fram á meira þol en veslings Eriksson gerði hjá Englandi.

Ég skrifa niðurstöðu Englands Portúgals á hxxxxxx vxxxxxxxxx og dxxxxxxxx hann Ronaldo og dxxxxxxxx argentíska dómarann og fxxxxxx hann eriksson.

Nafnlaus sagði...

Skrytid þvi eg skrifa tap englands a heimsku Rooneys...... hann getur bara farid heim og dundad ser vid þad ad hamra Essex melluna sina i andlitid þvi þad gerir hann best ... ....

Nafnlaus sagði...

Hvad gerdi Rooney af ser, hann fleygði sér ekki í jörðina eins og svindlararnir og vælukjóarnir frá Argentínu og Portúgal. Og fyrir það fékk hann rauða spjalið...

Nafnlaus sagði...

Nei hann tykist eitthvad hardur stigur a pung mannsins lætur reka sig útaf og fyrir vikid ....vikid af velli semsagt loft i hausnum a heimskum dreng...