
Jæja, spurt er um borg. Fólk þekkir eflast flóann fagra og kemst þá á bragðið en annars er önnur mynd sem hægt er að styðja sig við en hún er af frægum byggingum ásamt fögru listaverki. Það væri gaman að fá nafn listamannsins Teddi minn.

Annars vil ég biðjast afsökunar á ömurlegum færslum uppá síðkastið en eigi get ég lofað framförum að svo stöddu en vona að línur skýrist í tæka tíð. Þess má geta að Hössi hefur farið á bak orða sinna um viðtal og er það tíðrætt að háar tekjur og kvenhylli hafi stigið kauða til höfuðs. Vonandi fáum við gamla reykinn aftur innan tíðar.
4 ummæli:
Er thetta nokkud yokohama í Japan nei,eda hvad?
jú ég sé ekki betur. Þetta átti reyndar að vera Tokyo en þessi fokking ör bendir á Yokohama ef vel er að gáð. Svona eru þessir veraldarvönu, þefa upp svörin ef maður sýnir þeim flóa eða tvo. Stendur þig vel og sjáumst á skerinu.
Því miður, minn kæri næturvörður, þá hef ég ekki hugmynd um listaverkið né listamanninn.
nei nei, það má taka það frm að svarið átti að vera Tokyo. Óli reyndist full nákvæmur en hafði þó rétt fyrir sér. Ég ætla nú ekki að hafa spurningarnar það erfiðar.
Skrifa ummæli