Get ekki beðið eftir næstu makkar æfingu til að reyna að herma eftir snillingnum Henry!!!
föstudagur, júní 30, 2006
fimmtudagur, júní 29, 2006
Óður til Friðgeirs R. Hafliðasonar
Frikki hringdi í mig í gær og benti mér á þennan link. Margt áhugavert sem og skemmtilegt, en hvern hefði grunað að myndbandið með Journey myndi standa uppúr í þessu annars ágæta safni!!!!!!
Þess má geta að sunnudagspistill minn sem ég aldrei náði að klára eða kaus að birta ekki er mættur og liggur undir Ribery.?.
miðvikudagur, júní 28, 2006
sehr fruhlich oder......
1 Bjorn Hauksson 104
2 egill sigurjonsson 100
3 Jon Thor Eythorsson 82
4 olasfur Stefansson 81
5 Grimur Thordarson 79
6 Fridgeir Ragnar Haflidason 70
7 Larus Johannesson 69
8 Egill thor 67
9 Hossi Reykur 61
10 Hrannar Sigurdsson 58
11 Toti Ingimu 47
Jón Þór er líklega hástökkvarinn um þessar mundir. Björn(nr.1690 á heimsvísu) er feikisterkur og Egil Sig má ekki vanmeta. Þó spái ég að úrslitin munu koma á óvart. Ólafur og Grímur hafa ekki fylgt eftir efnilegri spilamennsku og árangur þriggja neðstu er til skammar og vil ég benda þeim á hnappinn "remove team". Egill Þórðar hefur lent í multimedia veseni og ekkert við því að segja.

Frakkar léku mig grátt áðan. Hafa svo gott sem skemmt HM.
Einar Bragi gæti aftur á móti farið langt. Hann mætir Argentínu á föstudaginn og takist honum að sigra þá viðureignina eru öll mín lið dottin út og gamanið búið. Ég þrauka ekki að sjá Ballack halda á glæsilegasta bikar sem til er með uber alles setningar og leiðindi.

sunnudagur, júní 25, 2006
Einar
Til Hamingju Einar og takk fyrir mig og þakka þér fyrir að þakka fyrir gjöfina.
Ég gaf honum markmannshanska og rauðvín ásamt Hrannari, Lárusi og Didda Thor. Fjör í gær og allt fór vel fram,. Menn lögðu áherslu á að skemmta sér og varla sá vín á nokkrum manni. Ólasfur kominn heim og virtist finna sig vel. Íbúð Einars er kingilmögnuð og greinilegt að að hann hefur lagt sig hart fram í lífinu hingað til og það ekki bara í félagsfræðinni. Ég lýt/lít upp til hans í dag en það gerði ég ekki áður. Einar er drengur sem fer gjörsamlega ótroðnar slóðir og gjarnan treður sínar eigin ef

þriðjudagur, júní 20, 2006
1/2

Ég missti samlokuna mína í gólfið þegar ég heyrði í útvarpinu að HM´06 væri hálfnað!!! Helmingur leikjanna er búinn. Ég reyndar sé það nú að leikjunum fækkar eflaust en mikilvægi hvers leiks og hverrar spyrnu verður gríðarlegt. Á morgun þriðjudag eru fjórir leikir. Tveir klukkan 14.00 og tveir klukkan 19.00.... Útsláttakeppnin hefst laugardaginn 24. juní með tveimur leikjum.
Fantasy-leikurinn er í gangi og þó svo að sá leikur sé langt frá því að vera gallalaus að þá gefur hann sumum leikjum meira gildi. Til dæmis sat ég límdur við leik Saudi Arabiu - Úkraína... Ekki hef ég minnstu taugar til þessara liða (þó vinur minn (FordRanger) haldi með Saudi Arabíu) en vissi að andstæðingar mínir voru með Schevchenko í sínu liði.
°Björn reyndist hástökkvari gærdagsins, já eða Grímur þrítugi
°Hrannar á eina skiptingu eftir og verður gaman að sjá hver kemst í hans dapra lið
°Diddi er ekki með en hann var alltaf með efstu mönnum á sínum tíma
°Tóti fékk aðstoð Reyksins við val á sínu liði en hefði getað valið sterkari ráðgjafa einsog sést á stigatöflunni.
°Ólafur talar ekki bara með hreim eftir svaðilförina heldur skrifar einnig með hreim, vil biðja fólk að virða það
°Leikurinn er einungis hálfnaður og ansi mörg stig í pottinum.
°Eftir riðlakeppnina tvöfaldast vægi atburða í leiknum. Mark gefur sex stig svo dæmi sé tekið og einnig munu mínusstig tvöfaldast.
egill sigurjonsson 52
Bjorn Hauksson 48
Grimur Thordarson 44
Friðgeir Ragnar 43
olasfur Stefansson 41
Larus Johannesson 39
Jon Thor Eythorsson 38
Hrannar Sigurdsson 32
Egill thor 28
Hossi Reykur 25
Toti Ingimu 22
°Schevchenko fæddist í Chernobil
°Chernobil þýðir svart gras á úkraínsku
°Hafiði tekið eftir því að allir í liði Sviss leika með úr!!
°Ronaldo hinn Brasilíski gengur undir nafninu "sekkurinn"
°Kewell missir af leiknum við Króata vegna guls spjalds eftir leikinn við Brassa..
Gangi ykkur vel og munið að einungis er um leik að ræða.....
mánudagur, júní 19, 2006
HM 2006

Styttist í að riðlarnir klárist og gaman að segja frá því að næturvörður hefur áttað sig á þróun mála...
Second round:
1.Ger-Swe 5.Íta-Ást
2.Arg-Mex 6.Fra-Tun
3.Eng-Ekv 7.Bra-USA
4.Por-Hol 8.Spa-korea
Quarter-finals:
1.Ger-Arg
2.Íta-Fra
3.Eng-Hol
4.Bra-Spa
Semi-finals:
1.Arg-Íta
2.Eng-Spa
Finals:
Argentína-Spánn
Winner:
!!!!!SPÁNN!!!!!
Nú er barað vona að Spánn taki Túnis á morgun og Liverpool mennirnir síni heiminum hvernig eigi að gera þetta...
Annars þætti okkur hér á síðunni vænt um að menn létu sína spá í ljós. Hvaða lið mætast í úrslitaleiknum og hvaða lið sigrar.
föstudagur, júní 16, 2006
Óður til Chris

Chris-B er búinn að meika það, svo mikið er víst. ég hef löngum kennt hann við jaðaríþróttir og nýlega komist að því að hann kann ekki að taka innkast í fótbolta. Nú skartar hann einum svalasta starfstitli sem ég þekki. Ég reyndar þekki titilinn ekki en hann er örugglega svalur. Chris var svo vænn að senda mér mynd frá æfingunni í gær. Aldeilis orðinn að hetju drengurinn.
miðvikudagur, júní 14, 2006
suðurland
Fátt hefur verið ritað um Makkarferð sumarsins ´06 og næturverði er spurn, hví..!
Gerðist eitthvað sem enginn má vita. Braut Diddi af sér? Kýldi Villi Grím?
Ólafur Stefánsson vinur minn færði fram bón um skýrslu en ekkert hefur verið ritað.
Slökkti Frilli í partý-inu? Hvar var Frosti á meðan? Er Agli runnin reiðin? Snérist Reykurinn gegn Ragga? Ritið um túrinn eða Hrannar.........
Gerðist eitthvað sem enginn má vita. Braut Diddi af sér? Kýldi Villi Grím?
Ólafur Stefánsson vinur minn færði fram bón um skýrslu en ekkert hefur verið ritað.

þriðjudagur, júní 06, 2006
spurningakeppnin
sunnudagur, júní 04, 2006
júníspurningin

Jæja, spurt er um borg. Fólk þekkir eflast flóann fagra og kemst þá á bragðið en annars er önnur mynd sem hægt er að styðja sig við en hún er af frægum byggingum ásamt fögru listaverki. Það væri gaman að fá nafn listamannsins Teddi minn.

Annars vil ég biðjast afsökunar á ömurlegum færslum uppá síðkastið en eigi get ég lofað framförum að svo stöddu en vona að línur skýrist í tæka tíð. Þess má geta að Hössi hefur farið á bak orða sinna um viðtal og er það tíðrætt að háar tekjur og kvenhylli hafi stigið kauða til höfuðs. Vonandi fáum við gamla reykinn aftur innan tíðar.
laugardagur, júní 03, 2006
Fyrirspurn næturvarðar
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)