mánudagur, apríl 10, 2006

Ford Ranger 3.0

Fantasy-vefurinn stendur e-ð á sér. Þó gat ég opnað hann í nótt og man að Lalli leiddi og á tólf stig á mig en ég er í 4. sæti á eftir Thor thunder og FC cesar. Johnny var neðstur sem kom mér á óvart þar sem hann var með Bellamy og Newcastle unnu. FC Fitzrovia átti góða umferð en einnig Diddilove.
Mynd vikunnar er af Tulsa-kid en hann hefur aldrei náð að hrista af sér suðurríkja fílinginn eftir árin í Oklahoma.
Mér hefur borist kvörtun varðandi ljóshærðu ferðalanganna. Það bárust tvær myndir eða svo frá Lassa litla í upphafi ferðar eða fyrir um hálfu ári. Óli brúni keypti svaka cameru í borg hlauparans en viti menn, engar eru myndirnar. Þeir hafa ekki sent mynd, ekki eina. Ég skora því á þessa annars ágætu drengi til að leggja frá sér kokteilinn og senda. Næturvörður hefði gaman að því að birta mynd eða tvær á þessum eftirsótta miðli. Auðvitað verður ekkert birt nema með samþykki. Annars bið ég að heilsa þeim og vonandi ná þeir að slá frá sér þær hindranir sem Óli lýsti í kommentum gærdagsins.
Njótið myndarinnar af Fordinum og munið að svona bíll getur orðið ykkar ef þið farið eftir mottóum flugvirkjans: first duty then pleasure...!

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ja vid reynum ad senda eitthvad fljotlega.
Erum bara svo rosa bissí.
Komum til Salvador de Bahia i gaer.
Aaaaaaaaa hugsudum vid, nu verdur slakad a efir haettur vikunnar i Rio.
Allt byrjadi svaka vel. Fallegt, flott, cool, mikid cult, keeeellingar osvfr.
Urdum samt fljott varir vid ad areitid her er gridarlegt. Og kemur thad ur munni tveggja manna sem hafa ymislegt sed a undanfornum misserum.
Thad sem tok fyrst vid okkur er vid stigum ur rutinni i centro. Bidandi fyrir utan hurdina a vagninum var oldrud kona.
Hun skrikti: money, money, give me money....eeeeeeeee
Ok, eg vorkenni gomlu fataeku folki og allt thad en held ad thessi hafi verid norn.
Svo um kveldid lentum vid i thvi ad hvert sim vid forum tha eltu tvaer stelpur okkur allt sem vid forum.
Struku okkur og drukku allan bjorinn okkar. Thratt fyrir ad vera gert thad fyllilega ljost ad thaer voru ekki aeskilegar.
Kvoldid endadi svo a torginu Largo Do Pelourinho, thar sem aftokur og thraelauppod foru fram langt eftir 19 oldinni,
Vid Oli hofum samt fundid mikid betra nafn a thetta og kollum thad krakktorgid.
Satum tharna ad sotra ol, atti ad vera makinda stund. Thess i stad var gjorsamlega oll orka soginn ur aedum minum. Ef svo kikid sem glittadi i retuupakkann, tha voru fleiri manns stokknir a mann i snikid. Ekki bara reykingarfolk.
Olett krakkhora let okkur ekki i fridi og vildi olm selja okkur halsmen.
Nei takk!! En hun bara haetti ekki!
I am pregnent, money money.
Oli komst svo ad ordi:
I did not make you pregnent, go away!
Ja
Madur hardnar med umhverfinu!!
Annars njotum vid lifsin mjog her, attum godan dag sem er nu ad kveldi kominn og planid er ad kynna ser nytt hverfi i kvold.
Mun passa mig a Krakktorginu framvegis.
Thad er thad laaaang hardasta sem eg hef sed a aefi minni.

Verd ad fara ad sinna skyldum kvoldsins nuna........

Kvedja til ykkar allra

Og afram med gott blogg Naeturvordur

Chau