Glaðari manneskju en þessa 46 ára pólsku konu sem ég flaug með hef ég ekki séð. Vegna óframfærni og undirgefni ætlaði ég ekki að fá hana til að trúa því að þetta gæti átt sér stað. Konan hreinlega skammast sín fyrir að vera til, ber gríðarlega virðingu fyrir mér og vinnur einsog maskína fyrir lágum launum. Húðin í andliti hennar rifnaði hreinlega þegar við svifum yfir Breiðholtið en líklega hefur hún ekki brosað svo árum skiptir. Þessar pólsku eru nefninlega ekki einsog þær asísku sem brosa sífellt.
En ekki gef ég aðeins. Góðvinur minn Diddi hringdi í mig seint á miðvikudagskvöldi og bauð mér í mat á föstudagskvöld. Sounds good sagði ég og þáði gott boð. Var reyndar pínku svekktur að geta ekki fengið mér í glas með matargestum vegna næturvinnu sama kvöld. Það var svolítið mikið að gera þennan dag og ég barðist við tímann til að geta komið tímanlega til Didda (hann býr á holtinu í Hafnarfirði einsog allir vita). Reyndar er Diddi frægur fyrir að taka lífinu með ró á kvöldum sem þessum þannig að þegar klukkan var um 19.30 lagði ég í hann pínku seinn ný sturtaður og vel lyktandi, með tvo Thor-bjóra í poka og drullusvangur eftir busy dag. Á leiðinni til Didda var ég að pæla í því hverjum Diddi hefði boðið. Ég tók nefninlega þá ákvörðun að vita ekkert um gestalistan enda gat henn ekki klikkað að mínu viti. Nöfn einsog Jói roscop, Kristinn Páll, Hössi, Hrannar og Sigrún hljóma ágætlega í mínum kolli. Þegar til Didda var komið brá mér örlítið. Ég vissi að drengurinn er rólegur en þarna var ekkert í gangi. Hann á nærbuxunum einum klæða með rettu en annars ósköp sællegur eitthvað. Inni í annars snotri íbúðinni voru engin ummerki um gleðskap, hvað þá matarboð. Diddi talaði um að Hrannari hefði seinkað á leið sinni frankfurt-keflavík og sagðist svo hafa hringt í Reykinn uppá Fridays ferð að gera. Líklega gleymdist að hafa samband við Næturvörðinn en eins gefandi og hann er orðinn að þá tók ég þá ákvörðun (í skyndi) að vera bara hinn hressasti. Eftir stutt spjall komst ég að því að garnirnar gauluðu í drengnum og reyndist það vera lykillinn að kvöldinu mínu. Hann dreif sig úr nærbuxunum og í sturtu. Stefnan var sett á Fridays þar sem Diddi ætlaði að kynna mig fyrir feikifínum rifjum einsog hann orðaði það.


Bellamy gerði það gott í dag sem kemur johnny og Diddalove vel. Enginn veðjar á Crouch og R. Keane fær ekki athygli margra. Morgundagurinn er ansi skemmtilegur í boltanum þannig að ég býst við að rölta beint á barinn frá kirkjunni. Góða nótt og munið að það er betra að gefa en þyggja.
4 ummæli:
Það er mikið að melta hjá Næturverðinum í dag...
Byrjum á byrjuninni:
Skoðanakönnunin, að sjálfsögðu girnist ég HM. Ég er enn líklegur til að skella mér til Þýskalands í lok júní ef England stendur sig vel... Fylgjast með lokaleikjunum á risaskjá.
Robbie Keane, að sjálfsögðu er enginn okkar með þennann fýr í sínu fantasy liði. Ég og Matti vorum á Tottenham - Man C í gær og sáum kauða spila. Vissulega er hann nokkuð fær en þreyttur leikmaður er hann. Hann var sífellt að skipa öðrum fyrir og Matti sagði hann eiga hallærislegasta fögnunarstíl í deildinni.
Yoga og hjól, ef rétt er þá líst mér vel á.
Robbie Keane er lika naudalikur godkunningja okkar.
Og hver er thad, spyr eg???
Visbending 1: Byrjar a Omar
Sael verid thid verdir og vandamenn.Skin og skúrir, líka í Brasilíu.
Vikan var nokkud svort:
skatturinn vill 1,3 millur frá mér.(eitthvad skýrslubull)(ég samt saklaus)
félagi okkar lokadur inná gedveikrahaeli í Rio.
Ég lenti í árekstri í leigubíl, hlidin oll daeldud og ég fékk bíl í olnbogann.
Saklaus madur skotinn til bana á localbarnum okkar Lalla á fostudaginn thar sem vid erum nánast daglega.
Vorum annars ad lenda í Salvador sem er Africano-Brazil blondud borg,yndisleg so far svo ég hef tekid gledi mína á ný.
Svo er búid ad klessa tvisvar á hana Eriku vinkonu mína í thessari viku.
Vid Lalli vorum teknir af loggunni í sitthvoru lagi á midvikudaginn.og bla bla bal.
Bara svona ad láta ykkur vita.
Óli brúni.
Littli Lárus (Laurinho), þú sérð Ómar í öllu sköpuðu... :-).
Skrifa ummæli