
Hrannar hafði rétt fyrir sér, bókin Býr Ísl. hér er mögnuð. Ekki frá því að hún sé öflugri en dagbókin hennar Önnu litlu Frank. Þessi er allavega töluvert ljótari. Maður bara getur ekki hætt að lesa um fjandans ástandið sem Leifur heitinn Muller þurfti að láta yfir sig ganga. Merkilegt að menn skuli hampa hakakrossinum í nútímanum og segja hann flottan. Flott nægir mér ekki, burtu með helvítis krossinn. Annars bíður næturvarðar önnur bók í nasistageiranum og mun hún vonandi loka fyrir þennan áhuga sem upp hefur gosið. Sú heitir lestarferðin eða e-ð á þá leið og þurfti hámenntaðan bókmenntafræðing til að benda á þá skrudduna. Svo þarf maður að sjá myndina The whole story um Anne Frank áður en efnið verður lagt til hliðar.
Í lífi næturvarðar gerist ekki blautur skítur. Reyndar gistir hér crew-ið í Erninum, dönskum framhaldsþætti. Þetta lið heldur að það sé frægt en svo tel ég ekki vera, þetta eru bara aular sem halda fyrir manni vöku.
Lassi litli er víst lentur. Þá hlýtur að vera komið sumar, annars væri þessi glaðlyndi hagfræðingur varla að láta sjá sig svona norðarlega. Hann kemur sama dag og fyrsta krían fauk hingað. Vonandi fær maður að knúsa hann á æfingu á morgun í rokinu og haglélunum.
Mökkur group hélt fund um helgina. Fyrir valinu varð laugardagskvöld þar sem vín var haft við hönd og líklega um margt rætt nema framtíð Makkar ef ég þekki Bakkus rétt. Litlar hef ég áhyggjurnar enda Mökkur FC á réttri leið og vonandi koma Óli Stef sem er fyrrverandi landsliðsmaður í greininni og Björn Lundi fljótlega en sá síðarnefndi er sá eini í herbúðum Makkar sem getur hreyft sig í 90 mínútur.
Mundu þegar þú kjamsar á kvöldmatnum í kvöld og finnur til þreytu eða jafnvel smá þynnku að Leifur Muller hefði gefið allt fyrir þínar kringumstæður.
6 ummæli:
Ja eg sagdi þer þad hann Leifur er ekkert ad tvínóna vid hlutina... er mer oft hugsi um hrakir Leifs og spyr sjalfan mig trekk i trekk WHY? Til hvers ad halda afram afhverju eltirdu ekki Holger Krug a rafmagnsgirdinguna...
ertu ad reyna ad segja mer ad þu hafir sed fyrir endanum a þessu eda finnst þer bara gaman ad vinna svangur.... Heyr heyr fyrir þrautseigju Leifs...
Þad stendur alltaf 0 comments þratt fyrir mitt comment fyrir longu sidan???
Næturverðinum er svo umhugað um óhamingju annara þessa daganna að hann á skilið smá raunveruleikasögur úr Rio.
Ein vinkona mín missti báða foreldra sína í sama bílslysinu, pabbinn var að keyra drukkinn. (Einsog allir gera þar)
Önnur stúlka sem ég þekki er 23 ára einstæð móðir. Missti barnsfaðirinn þegar hún var kominn 6 mánuði á leið. Þau lentu í rifrildi, hann var fullur og rauk út. Keyrði á og dó.
Svo enn önnur með slæma sögu, ég spottaði nýtt Tattoo a bakinu á henni sem á stóð: Leandro og engill við hlið. Ég spyr hvort Leandro sé kærastinn.
Nei, það er nafnið á 18 ára bróður hennar sem var skotinn til bana af löggunni í Río fyrir mánuði síðan.
Svona er Río í dag, flestir bera einhvern harmleik undir beltinu....
já þetta er harður heimur. Svo vaknaði ég með munnangur í morgun þannig að vandamálin eru nú ekki bara í Brasilíu.
Leifur Muller hefði nú eflaust bara viljað vera í sporum Leandro heitins.
Annars hvernig ertu stemmdur fyrir laugardagskvöldinu? Hössi á nú bara afmæli einu sinni á ári !
Annars vorkenni ég Hössanum svolítið, löglegt mark dæmt af.... Ekki gott, harður heimur.
Það er æfingaleikur a sunnudag.
Er til í hóflega drykkju samt sem aður.
Ef ég næ að stela mér víni og pening......
Ja Egill minn svo er ekkert betra en ad sofa og kela vid schindlers list
Skrifa ummæli