
Mig vantar skó. Skellti mér í Kringluna með Elísu. Hún veit hvernig á að gera þetta. Áður en ég vissi af var ég staddur í Vero Moda og daman að máta buxur. Áhugi íslenskra kvenna á búðum er massívur. Búðin var troðfull (kringlukast) og svo voru þær allar svo einbeittar og góðar í þessu. Ég var eini karlmaðurinn í búðinni fyrir utan samkynhneigðan starfsmann. Það eru sjö mátunarklefar í búðinni sem dugar ekki því það var ágætis biðröð. Allir í biðröðinni voru með búnka af fötum og maður sá að það hlakkaði í þeim. Ætli það hafi ekki verið svona sextíu konur þarna, hrifsuðu allt til sín sem þau gátu borið ásamt innkapapokum úr öðrum búðum. Ég skil ekki hvernig er hægt að hafa svona mikinn áhuga á þessu.
Ég eignaðist ekki skó í þessari ferð en komst þó nálægt því. Voru ekki til í minni stærð. Ætli ég versli ekki bara á netinu héðan í frá?
3 ummæli:
Ég mæli frekar með því að þú takir títtnefndan Elmar Eggertson til fyrirmyndar. Þegar honum vantaði nýj skó ´hér í den þá fór hann bara á inniskónum í sund, stakk þeim í bakbokan og valdi svo sér þá skó sem honum leist best á, á leiðinni út!!! Einfalt og svo náttúrulega engin kostnaður ef gjaldið fyrir sundið sé ekki undanskilið...
Varstu ad kaupa þer skó ? Nei eg Eg er nykominn ur lauginni
hahahahahahahahahaha
Skrifa ummæli