miðvikudagur, mars 01, 2006

Bjór

Þennan dag árið 1989 var bjórbanninuaflétt og ég ætla sko ekki að láta mig vanta á kránni í kvöld. Ætli feita bollu-fólkið komi úr fylgsnum sínum og svolgri í sig öli með góðu samviskuna sína? bla bla
Nú er Hössi hættur að kommenta og næturverði er ekki skemmt.
Hrannar eða arsenal einsog ég kalla hann gjarnan vegna vaxtarlags er eini sem giskar. Reyndar hefur Elísa sæta verið eitthvað að fikta við það líka. Teddi vill vera með allt á hreinu en hössi og siggi virðast bara loka sig af ef spurningin hentar þeim ekki.

arsenal fer til coloradofylkis fyrir helgi og segir það manni allt um velgengnina sem þar hefur hreyðrað um sig. Vegna ferðar hans verður birt önnur mynd af bassaleikaranum.

8 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Er þetta bassaleikari Red hot Chillipeppers

Nafnlaus sagði...

sem heitir auðvitað Flea

Nafnlaus sagði...

Já það er naumast hvað maður er tekin í bakaríið!!! ef maður tekur sér smá frí þá er orðspor manns lagt í rúuussst!!! ...

En mitt gisk er að þetta er bassaleikari einnar áhrifarmestu rokk hljómsveitar seinni tíma BASIC ABUSE sem starfaði á níunda áratugnum og bassaleikarinn var kallaður að mig minnir ADDIVALG....

Nafnlaus sagði...

Ætlar Höddi ad reyna ad stela minu stigi ...... EG segi FLEA

Nafnlaus sagði...

Já eitthvað finnst ég mér kannast við smettið á kauða, en ég bara kem honum ekki fyrir mig. Og í sambandi við Metallica þá heitir núverandi bassaleikari Robert Trujillo. En hann tók við af Jason Newstead sem hætti. Newstead tók við af Cliff Burton sem lést í rútuslysi í Svíþjóð.
Og ég held að þetta sé ekki Flea

Nafnlaus sagði...

já þetta kemur mér bara hreinlega á óvart. þessi bassaleikari er einn sá færasti.

Nafnlaus sagði...

Les Claypool í hljómsveitinni Primus!!!! Betri helmingurinn sá myndina og kom með svarið um hæl.
Næsta spurning takk.

Nafnlaus sagði...

já þetta átti nebblega ekki að vera svo erfitt nema hvað að myndirnar eru gamlar.