Aftur vík ég mér að landafræðinni enda víðförulir lesendur þessarar síðu þyrstir í erótík. Í þetta skiptið er um yndislegan hafnarbæ að ræða. Hann er við Íslandsstrendur og má ég hundur heita ef menn klára þetta dæmi ekki í tæka tíð. Ég valdi íslenskt til að fá nýjan vinningshafa. Allir vitum við jú að hróní þekkir Nígeríu betur en sitt eigið land. Ekki er ég að tala niður til kauða heldur hampa, drengurinn hefur verið á faraldsfæti allt sitt líf. Vísbendingar eru núþegar komnar og get ég lofað því að engar eru blekkingarnar í þetta skiptið enda barst mér kvörtun síðast frá meiddum og tapsárum manni. Gott og vel. Giskið.

Því má við bæta að ég er ekki sáttur við commentaleysið sem tíkin Ásta fær neðar á þessari síðu og verður hún lögð niður ef ekki verður breyting á.
5 ummæli:
einu sinni var nú útgerðarmaður suður með sjó sem keypti af mér quadracer 250 fjórhjólið mitt og gerði mig að ríkum manni þegar ég var rétt við fjórtán ára aldur að mig minnir... en hann var frá grindavík sá höfðingi....hjólið lét ég fyrir 280 þús stgr.
Ju rett Diddi minn Þetta mun vera Grindavik.. eg var bara rett a eftir Didda og krefst 1/2 medaliu i minn gard
Ég hef ákvedid ad samstilla mig Næturverdinum.. svo eg nái spurningunni .. hédan af mun eg vaka allar nætur og sofa i vinnunni
Nú hefur flugvirkjanum tekist að leggjast lægra en tíkin Ásta gerði þegar hún fyrst skeit innandyra...
hví samgleðstu mér ekki bara og reynir að gera betur næst?
já helvíti eruði skeleggir. ég gef Sigurði heila medalíu enda grunar mig að hróní hafi ekki vitað svarið þrátt fyrir:
"Ju rett Diddi minn Þetta mun vera Grindavik.. eg var bara rett a eftir Didda og krefst 1/2 medaliu i minn gard"
Það geta allir skrifað svona og............
Skrifa ummæli