Bolludagur genginn í garð og er það mikill hátíðadagur hjá feitu fólki. Loks getur það hámað í sig feitmeti með góðri samvisku vitandi að þeirra bíður saltkjöt og baunir á næstu dögum. Já svoleiðis raðað í sig bollum lítandi út einsog risabollur. Kjamsað og smjattað einsog enginn sé morgundagurinn. Haltrað útí bakarí og, nei ég er nú barað djóka.
Spurningakeppnin skellti sér í helgarfrí vegna óreglu nokkurra keppenda um helgina. Siggi lætur ekkert á sér kræla í commentum en hrannsi litli aftur á móti ætlar sér sigur og tel ég að svo geti vel farið. Ekki hefur mér þótt turninn fagri fá margar ágiskanir og jafnvel sá stóri veit ekki sitt rjúkandi ráð einsog gjarnan er sagt á hátíðadögum.
Vísbending: Allar ágiskanir ykkar hingað til eru ansi fjarri lagi og þá meina ég í kílómetrum talið sé horft á hnattlíkan.

Í Guðana bænum Siggi koddu með komment, bara eitt fyrir mig.
3 ummæli:
Er þetta a meginlandi Ameriku ?
Þetta mun vera Coit tower San Fransisco......
Djöfsi sjálfur. Þetta kemur ekki fyrir aftur. Ég brá mér í kaupstaðarferð og gluggaði í leiðinni í ferðahandbók um San Francisco og komst að því að þetta væri þessi blessaði Coit Tower. Góður Hróni
Skrifa ummæli