Það er kannski að ég skerpi aðeins á reglunum hér.
Nr. 1 Ágiskanir eru einungis leyfðar tvisvar við hverja spurningu áður en að vísbending er gefin út en þá má viðkomandi reyna aftur og það tvisvar.
Nr. 2 Ágiskun má einungis eiga sér stað eftir klukkan 09.00 daginn sem spurningu er varpað í loftið.
Nr. 3 Við ágiskun skal EKKI notast við veraldarvefinn.
Nr. 4 Ágiskun undir dulnefni ógildar spurningu og verður sá er ranglega fór með kenni sitt fundinn með þeim leiðum sem þurfa þykir.
Brot á reglum gefur næturverði vald til að dæma eftir eigin höfði en mun þó ávallt dæma eftir svokölluðum brotastuðli sem ekki verður gefinn upp að svo stöddu.
Jæja, látið á eigin visku/fávisku reyna en munið að virða sanngirnistímamörkin sem gefin voru út í lið tvö hér að ofan. Gangi ykkur vel.

Staðan í leiknum að loknum tveimur spurningum er þannig að Hrannar hefur eina medalíu og Sigurður eina. Vonandi fáum við fleiri keppendur í þessa eitruðu keppni en vil ég óska Sigurði til hamingju með innsæi gærdagsins en ég verð þó að viðurkenna að eilítið forskot hafði hann vegna sjómennsku á Síldeynni og hefur ugglaust komið ósjaldan að landi í Grindavíkurhöfn.
7 ummæli:
Þetta mun vera Andy Kaufman ...
sem Jim Carrie lek ekki alls fyrir löngu..
fjárinn franskur, ég hef ekki við ykkur bræðrum. reyndar er þetta tony clifton en það er annað mál.
hrannar 2
Siggi 1
ætli ég fari ekki bara að hætta þessu í bili. kem kannski með eina á eftir, pinku þunga.
já eða sleppi því.
Ha Tony Clifton hvad meinardu hver i helvitinu er þad?
Egill hvaða kjæftaði er þetta ... þú mátt ekki gefa honum þetta.. auðvitað er tetta tony clifton eitt af betri gervum andy kaufman..þú svarar ekki spurningu dagsins strax án þess að maður fái að spreyta sig... ég er búin að vera á áríðandi ´fundi í allan dag og því ekki getað leikið mér á netinu líkt og flugvirkinn.....staðan er 1 - 1 ..
Þad ætti nu ad senda kótilettukjartan a hann Didda vin okkar...audvitad sleppirdu bara fundinum 2-1
já þetta er vel athugað. ég er ekki viss um að ég geti gefið rangt fyrir ágiskun virkjans því óneytanlega er það andy sem leikur tony. Þó stingur það mann svolítið í augun að hann skuli ekki þekkja tony clifton.
ég mun skera úr um þetta mál áður en langt um líður.
vonandi var þetta byrjendabragur hjá mér og get ég lofað að þetta gerist ekki aftur. ég hreinlega stend ekki klár á um hvað ég var að spurja og mun ég girða mig í brók í næstu spurningu.
Madur naer ekki ad spreyta sig, thessir drengir eru altaf bunir ad rulla thessu upp i morgunsarinu...
Eg og Oli erum a thvi ad vid seum i miklum selskap her i landi, en thad vidurnefni hefur Chileskt kvennfolk aunnid ser vegna holdafarsins!
Skrifa ummæli