Það er ömurlegt frá því að segja að Siggi hefur ekki kommentað í átta daga og er næturvörðurinn að hugsa um að leggja þessa síðu til hliðar þar til að hann nær sér af veikindunum. Vonandi nær hann sér og getur farið að leika ykkur hina grátt í spurningakeppninni. Keppni sem hefur breytt úr sér uppá síðkastið. Hugur minn er hjá Sigurði þessa dagana.

Þessari mynd náði ég af kauða þegar allt lék í lyndi.
Engar hef ég fregnirnar af þeim ljóshjærðu sem nota sinn tíma í erótískum leikjum á strætum suður ameríku. Tel ég líklegt að þeir séu í miklum ævintýrum utan internets. myndi ég glaður skipta á netinu og smá suðri í smá tíma.

Spurning helgarinnar er af landafræðilegum toga. Spurt er um turn. Turninn er í borg sem engin hefur landamærin en hver er turninn???
Ég hef ákveðið að hafa þessa keppni uppí átta. Hrannar leiðir með 5, hössi fylgir með 4 en sá stóri verður að teljast líklegastur með sín þrjú stig enda heitastur um þessar mundir. á botninum liggja svo þrjár manneskjur með eitt skitið stig og harla ólíklegt að þau blandi sér í toppbaráttuna.
Eigið góða helgi og munið að bakkus kemur aftan að manni þó síðar verði.
9 ummæli:
Ég stend á gati líkt og fótalaus kerling. Samt hef ég örugglega séð mynd af honum áður. Nei ég er engu nær.
standa ekki fótalausar kerlingar á götum?
rétt einsog mig grunadi að þá er lítið um tölvunotkun um helgar.
Skakki turninn í Písa?
Hmm nei, þetta er auðvitað ekki hann . . .
Ekki mun þessi turn vera á Möltu ? getur þad verid........
nei písa og nei malta.
Mér dettur í hug að þessi turn gæti verið í Jerúsalem. En nafnið veit ég ekki. Salómonsturninn er því mín ágiskun.
svo er ekki. ætli ég komi ekki með vísbendingu í nótt..
þad list mer vel á hef eg nu stillt minar klukkur eftir klukkum næturvardarins og hef þvi akvedid ad vaka a næturna en sofa i vinnunni .. þvi þessari keppni ætla eg EKKI ad tapa
Skrifa ummæli