mánudagur, febrúar 20, 2006

Googlaðu þetta Hrannar!!!

Jæja, Liverpool tóku þetta...
Ég ætlað að leyfa mér að spá því því að það verði allt brjálað á miðvikudaginn þegar Barcelona kemur á Stamford Bridge. Völlurinn er vægast sagt glataður. Ég er handviss um að Chelsea hafi seinkað viðgerð vegna leiksins því þeir eru vanir þessum skít en Barca ekki.
Hrannar heldur áfram að hala inn stig, Ótrúlegur drengur, með hug einsog tölva.
Hörður gat uppá setningunni úr Shawshank en fær ekki stig fyrir vegna svindls í Neskaupsstaðaspurningunni. Þar save-aði ég myndina af Neskaupsstað undir nafninu Vopnafjörður og viti menn, Reykurinn óð í gildruna og giskaði á Vopnafjörð. Ég hef svosem enga sönnun en hef þó dæmt svona. Vegna skorts á sönnunarbirði fær hann þó tækifæri til að laga stöðu sína á komandi misserum. Lítið er hægt að segja um árangur Sigga en hann virðist taka vinnuna fram yfir leikinn og þykir mér það miður.
Allavega, mynd af hvaða borg í Afríku gefur hér að líta?

Hróní 3
Siggi 1
fleiri hafa ekki komist á blað.

12 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þu segir Afrika eg hefdi skotid a Malasiu og kuala Lumpur lítur ekkert ósvipad út ... En ég giska á Nairobí Kenya ??

Nafnlaus sagði...

Já nei þetta er ekki Nairobi en feikifín ágiskun samt sem áður. Vonandi gengur þér betur næst.

Nafnlaus sagði...

hvad ma giska oft ??

Nafnlaus sagði...

Jæja, ætli maður verði ekki að viðurkenna á sig að maður varð freistingunni að bráð í síðustu spurningu. Egill var bara of klókur fyrir mig.
Ekki finnst mér þó sanngjarnt að stigið hafi verið tekið af mér, þar sem þar hef ég tæra samvisku. Enda búinn að sjá myndina nánast jafn oft og Egill. Finnst mér sanngjart að maður fái einn séns og lofa ég hér með bót og betrun.
Annars skýt ég á Jóhannesarborg í þessu tilfelli.

Varðandi svarta lista, þá bið ég alla málsaðila innilegrar afsökunnar, ástandið er bara svo slæmt, var að skoða heimabankann og er innistæðan þar 29 kr. En þetta er allt að koma, ég lofa því.

Nafnlaus sagði...

Næturverðir eru mannlegir einsog ágiskendur og eftir stuttan fund með hinum og þessum held ég bara að stigið fái að lifa enda ekkert í reglunum sem bannar þetta. Svo er auðvitað sniðugt að hampa næturverðinum í miðri bón.
Hrannar minn þú verður að lesa reglurnar, tvisvar má giska á milli þess að ég kem og segi af eða á. þetta geri ég svoað menn skrifi ekki nöfn allra helstu borga í þeim landshluta sem við á.

vísbending 1. --- hössi þætti fjáður maður með ofangreinda innistæðu á þessum slóðum.

Nafnlaus sagði...

vísbending 2. í ljósi þess að vísb. 1 var gölluð þá má bæta því við að borgin er ansi austarlega.

Nafnlaus sagði...

Okey þu segir ansi austarlega hummm
getur verid ad þetta se Addis Abeba Ethiopia ....

Nafnlaus sagði...

Hrannar þú truflaðir mig í gær, borgin er mjög vestarlega.

Vestur

Nafnlaus sagði...

okey semsagt eg fæ þa 2 sénsa i vidbot vegna villandi visbendinga og rugls i næturverdi...

Nafnlaus sagði...

þá segi ég Casablanca

Nafnlaus sagði...

rangt hössi en ekki slæm ágiskun..

hrannar, þú mátt giska tvisvar á milli minna commenta. einsog áður sagði er ég bara að koma í veg fyrir að menn giski endalaust oft. hreinlega þræði landabrefabokina sina.
vertu svo ekki með þessi leiðindi í minn garð.

Nafnlaus sagði...

Jæja, varla er það rétt fyrst Hróní hefur það ekki en nú segi ég Lagos.