Það kætti mig þó að Teddi byrjaði að commenta í liðnum hér á undan og tel ég þáttaskil hafa orðið á síðunni. Aldrei grunaði mig að erlendar tölvur myndu slá inn þessa síðu og hvað þá Teddi.

Ég vil benda erlendum lesendum að uppi í hægra horni síðunnar hef ég komið fyrir heimskorti þar sem hægt er að tilgreina staðsetningu sína. Ég er ekki síst að skrifa til ljóshærðu drengjanna í kólombíu eða hvar þeir eru.
Samningar hafa náðst við hössa um viðtal og vænti ég hans hingað á Sæbrautina hvað á hverju.
Ég vil einnig óska Einari markverði til hamingju með skemmtilegan leik werder bremen gegn fíflunum í juventus.
Í þetta skiptið spyr ég um nafn vatns í Evrópu.....? nú hugsa sjálfsagt margir að um þúsundvatnalandið sé að ræða en svo er ekki.
hra 5 hös 4 did 1 elí 1
jon 1 ted 1
7 ummæli:
Þetta mun vera lake Manjore vatn sem liggur beggja vegna landamæra Swiss og Italiu ??
Nei þetta er Coma vatn
Eða Garda vatn hið ægifagra.
Þetta er nú nokkuð gefið. Þetta er að sjálfsögðu nágranni þúsundvatnalandsins, Svíþjóð.
Stærsta vatnið á myndinni heitir Vänern og það næststærsta Vättern og við það vatn bý ég. Minni vötnin þekki ég ekki með nafni en býst við að þau heiti eitthvað sem endar á sjön.
Þakka fyrir mig.
já Teddi minn þetta er gefið en einungis þegar menn vita svarið. Loks fæ ég nákvæmt svar þar sem þekking er á bak við orðin. þess má geta, til að koma í veg fyrir samsæriskenningar að ég var búinn að ákveða að koma með sænska spurningu næst. Ætlaði reyndar að birta mynd af Gautaborg.
Glæsilegt og greinilegt ad madurinn til ad óttast i þessari spurninga keppni gengur undir nafnini Teddi .. Hnitmidad svar sem eg hefdi svosem fattad a endanum..
Já, ég ætla mér að koma sterkur inn enda annálað spurningaleikjanörd. Var til að mynda fyrsti varamaður í GettuBetur liði VMA 95 eða 96. Þess má reyndar geta að liðið tók ekki þátt í GettuBetur það árið.
Býst þó við hörkukeppni frá Hrannari og Hössa.
Skrifa ummæli