þriðjudagur, febrúar 28, 2006

Kjötkveðjuhátiðin

Ætli Lalli og Óli hafi skellt sér á hátíðina í Río? Líklega. Hrannar tók stórt skref í átt að titli í gær og Teddi sá um að tjá honum um velgengnina. Ætli sá stóri komi ekki með vísbendingar næst:)

Spurt er um tónlistamann en hvern?

Common Siggi common, þetta er að gera útaf við mig.

mánudagur, febrúar 27, 2006

mánudagur

Helgin búin, runnið af flestum og vonandi lá hitt kynið í valnum. Ólympíuleikarnir búnir og Svíþjóð tók ísknattleikinn. Ég helt reyndar með Finnum því mér finnst þeir aldrei fá neitt, bestir í að drepa sig og e-ð svoleiðis.
Bolludagur genginn í garð og er það mikill hátíðadagur hjá feitu fólki. Loks getur það hámað í sig feitmeti með góðri samvisku vitandi að þeirra bíður saltkjöt og baunir á næstu dögum. Já svoleiðis raðað í sig bollum lítandi út einsog risabollur. Kjamsað og smjattað einsog enginn sé morgundagurinn. Haltrað útí bakarí og, nei ég er nú barað djóka.
Spurningakeppnin skellti sér í helgarfrí vegna óreglu nokkurra keppenda um helgina. Siggi lætur ekkert á sér kræla í commentum en hrannsi litli aftur á móti ætlar sér sigur og tel ég að svo geti vel farið. Ekki hefur mér þótt turninn fagri fá margar ágiskanir og jafnvel sá stóri veit ekki sitt rjúkandi ráð einsog gjarnan er sagt á hátíðadögum.
Vísbending: Allar ágiskanir ykkar hingað til eru ansi fjarri lagi og þá meina ég í kílómetrum talið sé horft á hnattlíkan.
Skoðið nú fjárans myndina og látið á reyna, kannski hjálpar brúin ykkur:)
Í Guðana bænum Siggi koddu með komment, bara eitt fyrir mig.

laugardagur, febrúar 25, 2006

Helgarpása

Jæja, þá er kominn helgi og þá tekur hin vinnan við hjá flestum, að drekka í sig kjark og reyna fyrir sér á börum bæjarins og vonandi ná að vinna hug hins kynsins. Já eða bara drekka til að drekka en þannig er það nú gjarnan hjá fólki sem býr í myrkri einsog við Íslendingar.
Það er ömurlegt frá því að segja að Siggi hefur ekki kommentað í átta daga og er næturvörðurinn að hugsa um að leggja þessa síðu til hliðar þar til að hann nær sér af veikindunum. Vonandi nær hann sér og getur farið að leika ykkur hina grátt í spurningakeppninni. Keppni sem hefur breytt úr sér uppá síðkastið. Hugur minn er hjá Sigurði þessa dagana.

Þessari mynd náði ég af kauða þegar allt lék í lyndi.


Engar hef ég fregnirnar af þeim ljóshjærðu sem nota sinn tíma í erótískum leikjum á strætum suður ameríku. Tel ég líklegt að þeir séu í miklum ævintýrum utan internets. myndi ég glaður skipta á netinu og smá suðri í smá tíma.

Spurning helgarinnar er af landafræðilegum toga. Spurt er um turn. Turninn er í borg sem engin hefur landamærin en hver er turninn???
Ég hef ákveðið að hafa þessa keppni uppí átta. Hrannar leiðir með 5, hössi fylgir með 4 en sá stóri verður að teljast líklegastur með sín þrjú stig enda heitastur um þessar mundir. á botninum liggja svo þrjár manneskjur með eitt skitið stig og harla ólíklegt að þau blandi sér í toppbaráttuna.
Eigið góða helgi og munið að bakkus kemur aftan að manni þó síðar verði.

föstudagur, febrúar 24, 2006

Hver er stulkan?

Spurt er um íþróttakvensu.

food and fun

Hvers á maður að gjalda. Food and fun í gangi og allt brjálað að gera hjá næturvörðum hér í bæ. Hvernig verður þetta á bolludaginn.
Það kætti mig þó að Teddi byrjaði að commenta í liðnum hér á undan og tel ég þáttaskil hafa orðið á síðunni. Aldrei grunaði mig að erlendar tölvur myndu slá inn þessa síðu og hvað þá Teddi.

Ég vil benda erlendum lesendum að uppi í hægra horni síðunnar hef ég komið fyrir heimskorti þar sem hægt er að tilgreina staðsetningu sína. Ég er ekki síst að skrifa til ljóshærðu drengjanna í kólombíu eða hvar þeir eru.
Samningar hafa náðst við hössa um viðtal og vænti ég hans hingað á Sæbrautina hvað á hverju.
Ég vil einnig óska Einari markverði til hamingju með skemmtilegan leik werder bremen gegn fíflunum í juventus.
Í þetta skiptið spyr ég um nafn vatns í Evrópu.....? nú hugsa sjálfsagt margir að um þúsundvatnalandið sé að ræða en svo er ekki.
hra 5 hös 4 did 1 elí 1
jon 1 ted 1

fimmtudagur, febrúar 23, 2006

íþróttamaður

Hið ótrúlega hefur gerst. Hrannar giskaði á að pungurinn væri af vísundi. laukrétt. Drengurinn er ótrúlegur. Annars er það að frétta að mér leiðist þessi leikur. ég bara verð að fara taka viðtal við reykinn. Hér kemur samt ein spurning. Um íþróttamann er að ræða. Líklega frekar erfitt þannig að ég mun birta vísbendingar ef illa gengur.
Ekki grunaði mig að hrannar væri fróður um vísundi.
Er búið leggja didda inná spítala?
ætli sissoko sé hættur í fótbolta?
taka werder bremen þetta ekki bara?
hra 5
hös 4
did 1
elí 1
jon 1

bær

Pungurinn er greinilega að vefjast fyrir fólki. Er það hið besta mál. Spurning dagsins er leiðinleg að vanda og er myndin af bæ hér á Íslandi.

Veriði nú ekki að stressa ykkur á pungnum en þetta er af stórum og þungum ferfætling.
Ég finn bara ekki neina aðra góða mynd af dýrinu án þess að gefa tegundina upp.

Giskiði bara á bæinn og takið frí frá eistunum.

miðvikudagur, febrúar 22, 2006

Menn, staðir, dýr...?


Drengur að nafni Styrmir náði þessari skemmtilegu mynd af karlskepnu en hvaða tegund er þetta?

Þessi borg kemur dýrinu ekkert við en er mjög vinsæl heim að sækja og er ég ansi hræddur um að þetta sé full auðvelt fyrir heimsflakkara einsog hrannar og johnny.
Mér barst kvörtun í gær frá veikum starfsmanni Marels og var hann ekki sáttur við fjölda spurninga rétt á meðan hann er veikur og mun ég taka tillit til hans á komandi dögum.
Gaman verður að sjá Börsunga ganga inná Stamford bridge í kvöld, það verður allt brjálað ef þeir svo tapa 2-0 og ná ekki upp spili vegna aðstaðna.
Í lokin vil ég spyrja okkar ástsæla fyrirliða johnny hvernig heilsan sé. Ertu ekki bara nokkuð eðlilegur kæri kafteinn?

þriðjudagur, febrúar 21, 2006

skipin siglá sænum

leigubíll veistu um partí

Já það ætlar ekki af Sigga að ganga. Veikur með bólginn ökla og á meðan eru menn að safna stigum í leik sem hefur yfir gríðarlegum verðlaunum að skipa. Næsta spurning er svokölluð landafræðispurning. Ljóskurnar okkar í S-Amríku gætu hitnað ögn en borgin er einmitt af borg í þeim hluta heimsins.

Ætli Fowler skori ekki bara í kvöld?
Með kveðju til Ólastef & Lallajo sendi ég knöttin yfir til þín.
hra 4
hös 3
did 1

hver er hann?

Já The Smoke has arrived einsog stundum er sagt. Næsta spurning er einsog hin, ekki í sömu skúffu og höfuð hrannars. Þetta geri ég til að koma til móts við keppendur.


hra 4
hös 2
did 1

hvert er fíflið?

Jæja nú tökum við höndum saman og stöðvum flugvirkjann. Næsta spurning er af þeim toga að hann mun ekki vita svarið þrátt fyrir mikla google-færni.

Ég bið ykkur hina að stöðva leader-inn, það rignir víst nóg uppí görnina á honum.

afrika

Ekki eru menn beinlínis að standa sig vel og meira að segja googlarinn er að klikka.

Æliði nú nafninu útúr ykkur. Borgin er drulluvestarlega og þetta liggur í augum uppi.
Hra 3
did 1
hös 1

mánudagur, febrúar 20, 2006

Googlaðu þetta Hrannar!!!

Jæja, Liverpool tóku þetta...
Ég ætlað að leyfa mér að spá því því að það verði allt brjálað á miðvikudaginn þegar Barcelona kemur á Stamford Bridge. Völlurinn er vægast sagt glataður. Ég er handviss um að Chelsea hafi seinkað viðgerð vegna leiksins því þeir eru vanir þessum skít en Barca ekki.
Hrannar heldur áfram að hala inn stig, Ótrúlegur drengur, með hug einsog tölva.
Hörður gat uppá setningunni úr Shawshank en fær ekki stig fyrir vegna svindls í Neskaupsstaðaspurningunni. Þar save-aði ég myndina af Neskaupsstað undir nafninu Vopnafjörður og viti menn, Reykurinn óð í gildruna og giskaði á Vopnafjörð. Ég hef svosem enga sönnun en hef þó dæmt svona. Vegna skorts á sönnunarbirði fær hann þó tækifæri til að laga stöðu sína á komandi misserum. Lítið er hægt að segja um árangur Sigga en hann virðist taka vinnuna fram yfir leikinn og þykir mér það miður.
Allavega, mynd af hvaða borg í Afríku gefur hér að líta?

Hróní 3
Siggi 1
fleiri hafa ekki komist á blað.

föstudagur, febrúar 17, 2006

Hver er staðurinn


Jæja nú styttist í sumarið og þá leitar hugurinn gjarnan út á land. Gaman væri að fara á stað þann er þessi mynd er af en hver er staðurinn?

Kvikmyndagetraun Æskunnar

Úr hvaða kvikmynd er eftirfarandi setning:



"I´ll see you in hell before i´ll see you in Reno"

Ps. eigi sé ég mér fært að hafa stig af flugvirkjanum en þessi ónákvæmni mun ekki hjálpa honum í framtíðinni.

fimmtudagur, febrúar 16, 2006

Til hamingju

**************HRÓNÍ******************

VEIII.........

Hver er maðurinn???

Jú jú þið standið ykkur vel. Ég býst við að þessi sé ögn erfiðari en er þó ekki viss. Tel svosem lítið vit í því að hafa þetta e-ð rosa erfitt. Ásta fékk eitt comment í gær við myndina af sér og svo eitt niðrandi um sig við liðinn spurning, þótti mér það miður.
Það er kannski að ég skerpi aðeins á reglunum hér.
Nr. 1 Ágiskanir eru einungis leyfðar tvisvar við hverja spurningu áður en að vísbending er gefin út en þá má viðkomandi reyna aftur og það tvisvar.
Nr. 2 Ágiskun má einungis eiga sér stað eftir klukkan 09.00 daginn sem spurningu er varpað í loftið.
Nr. 3 Við ágiskun skal EKKI notast við veraldarvefinn.
Nr. 4 Ágiskun undir dulnefni ógildar spurningu og verður sá er ranglega fór með kenni sitt fundinn með þeim leiðum sem þurfa þykir.
Brot á reglum gefur næturverði vald til að dæma eftir eigin höfði en mun þó ávallt dæma eftir svokölluðum brotastuðli sem ekki verður gefinn upp að svo stöddu.
Jæja, látið á eigin visku/fávisku reyna en munið að virða sanngirnistímamörkin sem gefin voru út í lið tvö hér að ofan. Gangi ykkur vel.

Staðan í leiknum að loknum tveimur spurningum er þannig að Hrannar hefur eina medalíu og Sigurður eina. Vonandi fáum við fleiri keppendur í þessa eitruðu keppni en vil ég óska Sigurði til hamingju með innsæi gærdagsins en ég verð þó að viðurkenna að eilítið forskot hafði hann vegna sjómennsku á Síldeynni og hefur ugglaust komið ósjaldan að landi í Grindavíkurhöfn.

miðvikudagur, febrúar 15, 2006

Spurning

Aftur vík ég mér að landafræðinni enda víðförulir lesendur þessarar síðu þyrstir í erótík. Í þetta skiptið er um yndislegan hafnarbæ að ræða. Hann er við Íslandsstrendur og má ég hundur heita ef menn klára þetta dæmi ekki í tæka tíð. Ég valdi íslenskt til að fá nýjan vinningshafa. Allir vitum við jú að hróní þekkir Nígeríu betur en sitt eigið land. Ekki er ég að tala niður til kauða heldur hampa, drengurinn hefur verið á faraldsfæti allt sitt líf. Vísbendingar eru núþegar komnar og get ég lofað því að engar eru blekkingarnar í þetta skiptið enda barst mér kvörtun síðast frá meiddum og tapsárum manni. Gott og vel. Giskið.

Því má við bæta að ég er ekki sáttur við commentaleysið sem tíkin Ásta fær neðar á þessari síðu og verður hún lögð niður ef ekki verður breyting á.

sunnudagur, febrúar 12, 2006

Sigurvals flugvirkjans

já flugvirkinn kom sá og sigraði. Sjálfssagt vilja menn meina að þeir hafi ekki séð spurninguna í tæka tíð en sama er mér og líklega flugvirkjanum líka. Reyndar segir mér sá hugur að hefði reykurinn komist að, hefði svarið komið næsta auðveldlega enda á hann ættir að rekja til Chicago einsog flestir vita. Þessa fögru tóna fann ég á netinu sigurvegaranum til heiðurs og vil ég biðja yður um að hækka hljóð tölvunnar og njóta drengnum til heiðurs....

http://video.google.com/videoplay?docid=3520789471434710955&q=car

Já ekki amalegir tónar það.

laugardagur, febrúar 11, 2006

Borg

Liverpool fer til Wigan á morgun og vonandi skorar sláninn.! Fantasy football keppnin hefur verið lífleg og skemmst frá því að segja að hróní er búinn að vera arfaslakur á nýju ári og hættur að nenna tala um leikinn. Þvert á móti hefur Siggi meiddi styrkt stöðu sína með hverri umferðinni enda mjög taktískt þenkjandi. Líklega mun ég samt vinna þennan mánuð rétt einsog þann síðasta en hina keppendurna tekur ekki að minnast á, eilíft miðjumoð og viðbjóður. Reyndar virðist maraþonlundinn vera að skríða uppúr drullupollinum sínum enda staddur á höfuðstöðvum enska boltans og fær líklega upplýsingar sem við hinir getum einungis látið okkur dreyma um að fá. Sem dæmi veit ég að hann fékk eMail frá Mr. Benitez um daginn og við það gjörbreyttist liðsskipan Lundans og hann skreið upp töfluna. Auðvitað er þetta svindl en ég hef ekki miklar áhyggjur.
Í tilefni leiksins á morgun og þeirrar staðreyndar að flugvirkinn(lucky 13) okkar á afmæli innan fárra daga að þá kemur hér landafræðispurning. Vísbendingum verður fleigt í loftið ef illa gengur og mun ég strax koma með eina. Surt er:

Hvaða borg Bandaríkjanna sjáum við hér á myndinni?
Vísb.1 : Líklega þekkir Dj-Diddi þessa borg hvað best af okkur sem þessa síðu lesa.

fimmtudagur, febrúar 09, 2006

Starfskynning 3

Það hlaut að koma að því að við sóttum kokkinn heim. Drengurinn getur vart slitið sig frá bullandi pottum og beittum hnífum!!! Það þarf ekki að taka það fram að hann vildi endilega gera peru-steikta önd með kók-sósu sem við og þáðum með hnút í maga og svita undir höndum en Jói kippir sér ekki upp við það og kallar eftir meiri kóríander....

Jæja vinur, hví kokkur?
Jaa ég byrjaði nú reyndar sem rafvirkjalærlingur hjá Raf-X en lagði saman tvo og tvo þegar ég horfði á markaðsstjóra Marels kjamsa á samlokum mínum. Allar mínar tilraunir í eldhúsinu runnu ljúflega ofan í maga markaðsstjórans þannig að ég skellti mér í kokkanám á Holtinu.
Hvernig kemst rauðbirkinn og bólóttur unglingur að á Holtinu?
Eitthvað sá yfirkokkurinn við mig. Seinna fattaði ég að sá djöfull var snar samkynhneigður og kannaðist við mig vegna vinskapar míns við Ödda.
En nog um eldamennsku hefurdu átt einhver gæludýr?
Hvar er helvitís kóríanderinn Freyr drulladu þér i hagkaup ad kaupa meir. Gæludýr ju ég var nu kalladur Jói petshop til lengri tíma og heimili foreldranna dýraríkið,eg hef átt froska ,fiska og fleiri furðudýr enda mikill vinur dýra, ég get kannski upplýst þad núna að eitt þeirra var uppistaðan að omelettu sem ég fóðraði garðbæingana.(og brosir út í annað þungt hugsi um ferðir Freys).

Hver er svo þinn uppáhalds matur?
Bara allt grill, ég elska grill. jú ætli ég segi ekki bara grillaður fiskur til að segja eitthvað. Grillaður ufsi fylltur með jasmín fræjum og mjög þroskuðum kóríanderstilkum löðrandi í rommsósu, það er sko e-ð sem fólk spítir ekki útúr sér.
En hvernig er það? einhverjar minningar úr æsku þinni?
Ég gleymi því seint þegar faðir minn tengdi nýja
aiwa vídeotækið og bylting varð á heimilishaldinu, kallinn missti sig algjörlega á rec takkanum og má segja að um litla vídeóleigu hafi verið að ræða í tómu herbergi Adda en hann var við nám í Noregi.
Einhver vonbrigði úr æsku?
Tja, engin alvarleg en mér varð varla svefnsamt eftir að hafa dúndrað andliti Gunnar dóttur Sveins í kletta vegg á grunnskólaárum, en ég bar bara svo heitar tilfinningar til hennar Gunnar eða metalmouth eins og hinir kölluðu hana.
En hvernig fór fannstu ástina?
Í sömu andrá rennir Freyr inn í eldhúsið með nóg af rósmarín en engan kóríander,
æðarnar tútna út í andliti kokksins og hann fyllist bræði, hann skvettir brennandi heitri olíu í andlit drengsins sem rekur hræðilegt öskur ahhh
hann lætur ekki kjurt liggja og fleygir pottinum með öndinni í bakið a Frey sem hleypur út í tárum.
svar við spurningunni fékkst aldrei.
Framtíðaráform?
Opna stað í Breiðholti, meika smá pening á öllum þessu liði þarna ha ha ha. Ég er búinn að mastera austurlenska matargerð. Keypti krydd í Teheran um árið og ætla ég að kalla staðinn Fellakrydd eða InMoodForFood. Já ég hika ekki við að fara ótroðnar slóðir..!
En nú vinnur þu myrkranna á milli hvernig eru svo laun kokksins?
peningar skipta mig engu máli en ég næ endum saman eftir dýrar helgar. Maður fer ekkert að meika money fyrr en maður opnar sinn eigin stað.
Hvert er svo idol þitt í lífinu?
Eggert Leví fyrrverandi skólastjóri í Víðó, hann var mér sem faðir:) svo leit ég nú alltaf upp til Emma þegar ég sá hann prjónandi um bæinn á TS-inu sínu, hann átti alltaf besta TS-ið.
Áttu þér uppáhaldsfrasa?
ó já, til dæmis: Lambakjöt á diskinn minn, nei ég segi nú bara svona(kokkurinn skellir uppúr) auðvitað snilldarsetningin "make pizza not war" sem er ódauðleg og náttlega fight fire with fire....
Eitthvað að lokum?
Já ég vil benda nemanum Frey: að vinna það er e-ð minna, að éta það þeir jú geta spikfeitu helvítis hommar
Bíddu hversu þungur ert þú
nú get ég ekki staðið í þessu rugli lengur (pannan er kominn á loft)
Áskorun?
Að sjálfssögðu Hödda365, hann er alltaf svo hress.

Flestum þótti maturinn afbragð nema hvað að kokkurinn þurfti að gera samloku uppá gamla mátann til að hafa markaðsstjórann sáttan. Ekki málið sagði kokkurinn og fékk sér slurk af Tanquerey gini og smá sjéniver fyrir meltinguna.

Ásta



Já tíkin var eitt sinn ung og óreynd, ekki alltaf gera góðverk. Þessi mynd var tekinn aðeins degi áður en hún fór til Kanada í þjálfun, þjálfun sem átti eftir að gera hana að því sem hún er í dag. Ég vil benda áhugasömum á að hún verður í þættinum Út og suður í næstu viku og verður þar stiklað á stóru í hennar starfi. Það má líka taka það fram að hún var að fá starf hjá Landhelgisgæslunni. Mun hún vera um borð í þyrlunni í útköllum.

þriðjudagur, febrúar 07, 2006

kótilettukjartan


Já, hlé hefur orðið á þessum miðli vegna anna. Samningar hafa loks náðst við kokkinn knáa og má fólk fara búa sig undir gríðarlega vandað og gott viðtal. Kokkurinn er í myndatöku að svo stöddu. Auðvitað veit maður aldrei þegar jafn framsækið fólk og kokkurinn koma hingað á Sæbrautina í viðtal en ég mun gera mitt besta. hann ætlar að gefa okkur upp e-a uppskrift og vildi endilega láta mig birta þessa
skissu af J. Cash sem birtist honum í draumi, hann bara vaknaði með hana á náttborðinu. Snillingur.
ég hvet menn, konur og börn til að rita spurningar í commentin, e-ð sem þið viljið vita um kokkinn. reynið að koma þessum töffara úr jafnvægi, ekki síst þú siggi.