mánudagur, mars 12, 2018

miðvikudagur, október 22, 2014

sunnudagur, júlí 01, 2012

sunnudagur, september 04, 2011

Kiðjabergið

Hitti Óla á förnum vegi og hann var með fiskabúr í skottinu. Fannst það frásögu færandi. Hann var með einhverja útskýringu en ég heyrði hana ekki. Var of hissa á þessu öllu saman.
Fór í golf með þessum. Kiðjabergið heillaði okkur og við lékum allir rosa vel. Mér fannst Diddi bestur af þessum á myndinni en stendur kannski full nálægt boltanum. Óli var bezt klæddur í hollinu og Hrannar var glaðastur og kannski bestur.
Biggi Leifur þjónaði til borðs í hálfleik.
Hrannar var á bíl og enginn borgaði í bensín.
Hrannar var sá eini sem ekki var í stuttbuxum.
Óli er ekki með keppnisskap í einstaklings íþrótt.
Diddi kannaðist við gugguna í afgreiðslunni.

laugardagur, ágúst 13, 2011

Haust

Eftir Verzlunarmannahelgina er oft stutt í næturfrost, arineld og lestur bóka.

Í dag gerðu Liverpool jafntefli við Sunderland í fyrsta leik tímabilsins og KR urðu bikarmeistarar. Ég neyddist til að loka mig af og draga fyrir glugga og læsa útidyrahurðinni. Þarmeð bankaði veturinn uppá hjá næturverðinum með öllum þeim aragrúa kosta sem honum fylgja.

Verðbólgumarkmið, stýrivextir og kjararýrnun eru orð sem hafa einkennt landann síðustu misseri og hef ég ákveðið að láta ekki mitt eftir liggja í þjóðfélagsumræðunni.

Þegar sól fer lækkandi fara næturverðir á stjá.

þriðjudagur, apríl 12, 2011

þriðjudagur, febrúar 22, 2011

Farkostir, sparakstur & ýmsar vangaveltur

Verð á bensíni hækkaði hjá Skeljungi, N-1 og Olís í gærkvöldi og er hæsta verðið nú komið í 223,40 kr. per. lítra af 95 oktana bensíni.

Ja hvur andskotinn.

Ætli maður verði ekki að skoða aðra farkosti með hækkandi sólu. Nú gengur þetta ekki lengur. Skattastefna ríkisvaldsins og heimsmarkaðsverð neyða mann til umhugsunar.

Einsog flestum er kunnugt leitar næturvörður ávallt að lausnum í stað þess að láta bugast hmm.

- reiðhjól og fætur (grænir kostir) geta komið manni víða. Einnig bætir slíkt líkamlega heilsu og andlegt atgervi. Þó verður að viðurkennast að veðrátta á íslandi er ekki tilvalinn til slíkra samganga en næturvörður telur að þegar í vana er komið sé slíkt ekki endilega vandamál nema örfáa daga á ári. Gott getur verið að skottast í strætó á slíkum dögum.
Svitalykt getur reynst vandamál hjá reiðhjólamanninum og ekki síst þegar klæða þarf veður af sér. Allt til umhugsunar.
- vespa & strætó eru kostir sem vert er að googla.

Bifreiðanotkun er Íslendingum í blóð borin. Vinur minn Leó hefur sett í æðifínan og nánast tímalauan pistil til að draga úr kostnaði og auka endingu.

Hvort Leó sé fífl eða frelsari skal ósagt látið en hagsýni er óhætt að temja sér.

þriðjudagur, janúar 19, 2010

Joey the G-man Taylor

Þegar Næturvörður leiddi hugann að Jóa bassaleikara hringsnérist allt. Drengurinn hefur komið víða við og ávallt markað djúp spor í þó gríttan jarðveg. Fingrafimi hans hefur löngum verið umfjöllunarefni okkar félaganna en ekki síður fáránlegur húmor hans og uppátæki. Jói er án efa mesti grallari sem litli hafnarbærinn hans hafur kynnst og þykist ég vita til þess að enn sé verið að segja sögur af honum á kaffistofu Engidalsskóla.
Gert grín eftir bollaleggingar.
Oft er margt um manninn í smiðju Jóa.
Þarna mundar hann verkfærin einsog gjarnan er háttur á í Suður Englandi.
ÞArna gefur að líta mann sem kann sitt fag. Gert að og klárað.
Gert grín og yfirleitt á kostnað bágstaddra, kannski eini löstur okkar manns en viðbrögðin sitja aldrei á sér.
Jói hefur alltaf verið tengdur tónlist. Þarna náði ég honum meðtaka Hjálma ef ég man rétt.
Hjálpsemi lýsir Jóa ágætlega.
...gorellabúdda...

en svo fór Jói til Indlands.

fimmtudagur, janúar 14, 2010

Al Hra Naar

Eftir að hafa lagst undir feld einsog Bessastaðagrísinn gerði um daginn hef ég ákveðið að reyna að rífa "Vörðinn" uppúr þeirri lægð sem hann nú er í.

Einu sinni næturvörður, ávallt næturvörður.

Þrátt fyrir gríðarlegt álag á atvinnumarkaðnum mun ég setjast við skriftir every now and then. Margt hefur gerst bakvið tjöldin og ber þar hæst ritstuldur Ragnars á vakta-trílogíunni sem svo var kórónuð með kvikmyndinni Bjarnfreðarson. Mótlæti er mér í blóð borið og þó það geti reynst erfitt hef ég löngum getað fundið þrótt að nýju við að umgangast þann ágæta pilt sem prýðir myndirnar hér að neðan. Dugnaður er hans millinafn og þess má geta að hann skilur ekki orð á borð við meðalmennska, hvíld og þreyta. Þó finnur hann ætíð tíma til að gera glens og segja skrítlur þegar það á við.


Stund milli stríða. Þarna gengur okkar maður frá viðskiptum ásamt því að segja grín. Jóa var reyndar ekki skemmt en vilji Hrannars engu að síður góður.



Þarfasti þjónn Hrannars er án efa pallbíllinn hans sem hann verslaði í miðríkjum Bandaríkjanna.

"Lipurð og afl heilla mig"


Kaffi og kvistakaup. Dæmigerður dagur athafnamanns.





Einbeittur í átt að settu marki.

"Ég lærði margt varðandi árangur og
mikilvægi þess að setja sér háleit markmið
af Phillip McGraw,
leikmenn kalla hann reyndar Dr. Phil"







Umhverfið hefur löngum verið á varamannabekk kauða en svo er ekki lengur. Nú eru setningar einsog "flokkað og fleygt" orðnar honum sem boðorð.



"Einn kaffi og svo áfram með smjörið"

Svona er dagur í lífi athafnamanns í fríi. "til hvers að taka frí þegar nóg er að gera"
Maður spyr sig.....!

sunnudagur, október 11, 2009

Enn að samgöngumálum

Í ljósi þess að ég bý á meginlandi Evrópu og er eigandi fransks bíls ákvað ég að kynna mér álfuna í svokölluðu road trip-i.

Fyrst þurfti þó að koma bílnum í skikkanlegt horf en hann hafði gefist upp fyrir skömmu á leið sinni til Vínarborgar er danskur félagi ætlaði að sækja danska kærustu sína. Við fengum flugþjóninn Lubo til að skutlast með okkur í von um að pumpa lífi í frakkan. Það tókst svo æðivel að ég fór strax að plana ferð um álfuna okkar.Allt gékk að óskum til að byrja með, ekki feilspor á fyrsta legg en þó var hann hvíldinni feginn í Budapest einsog sést á myndinni.
Þessi var tekin við landamæri Ungverjalands og Slóveníu. Glaður bílstjóri á góðri stundu.
Næst var haldið til Ljubljana. Þar gafst Frakkinn upp við ein gatnamótin. Leggurinn sem slíkur var easy en þegar í borgina var komið slökknaði bara allt í einu á honum.
Eftir grúsk, svita og blótsyrði fannst kvillinn sem var lítilsháttar. Sambandsleysi í kveikjukerfi.
Því var reddað í snarhasti en svo ekið að verkstæði. Frakkinn náði ekki þangað og varð því að kalla út tvo viðgerðarmenn. Þeir komu með verkfæri og sína fagþekkingu og bíllinn spriklaði af stað og skundaði til Feneyja.
Eftir þann fagra stað lá leiðin til Graz, Austurríki. Alparnir voru bílnum engin hindrun og virtist hann jafnvel kunna vel að meta þá náttúrufegurð sem við blasti.
Við komuna til Bratislava fékk fákurinn svo meðferð sem hann hafði svo sannarlega unnið sér fyrir. Velheppnuð ferð og enn eitt dæmið um nauðsyn samgangna.

þriðjudagur, september 01, 2009

haustfærsla

Í ljósi þess að uppáhalds árstími okkar Hrannars er genginn í garð fannst mér kominn tími á færslu.
Ég hef flutt mig um set eða um 3km. Nú lifi ég við þann stórborgar unað að geta hvergi lagt bíl mínum en ég var semí-svikinn af leigusala mínum. Ég er ekki ólíkur Costanza fjölskyldunni. Fæ mig ekki til að greiða fyrir stæði.
Ein versta máltíð sem ég hef fengið í starfi. Sky Europe. Þeir fóru á kúpuna í morgun.
Minnti mig soldið á lirfuna sem Brooks gaf fuglinum sínum í Shawshank.
Næst mun ég fá mér rauðan bíl. Einfaldlega flottari.
Okkar reyndasti kafteinn ræðir við eina okkar reyndustu fluffu. Um hvað! má Guð vita. Þessi kall er einn sá snjallasti og er Austurríkismaður. Gamall rallýkall og sonus SS-foringja. Sjálfur segist hann ekkert vita um helförina því slíkt sé ekki rætt á hans slóðum.
Besta máltíð sem ég hef fengið í mínu starfi. Royal Air Marok
Miðbæjargatnamót í Bratislava. Allt að gerast en um leið, ekkert

laugardagur, júní 13, 2009

Condemnation

Í ljósi þess að Grímur átti afmæli fannst mér kominn tími á færslu. Þvílíkur kraftur og dugnaður sem hefur drifið þennan pjakk áfram. Hægt að læra endalaust af honum. Og einsog sést á meðfylgjandi mynd að þá er bræðrakærleikurinn aldrei langt undan. Til hamingju...
Skellti klassíska Renaultinum í olíuskipti. Þegar maður býr á meginlandi Evrópu er betra að vera á vel smurðum fák því maður veit aldrei hvert verður haldið næst. Borgir einsog Skopje, Krakáw og Lundur koma strax uppí kollinn.Flugvirkinn ógurlegi virðist ætla svíkja einmana vin í austur Evrópu. Ég hef ósjaldan valhoppað um strætin hér "vitandi" að von væri á kauða á tónleika með okkar ástkæra DM.
"Hey, frænka mín er með barn á brjósti mar" eða hvað hann sagði. Vinslit segja sumir, sjáum til segi ég.
Tók þessa af tveimur listamönnum í Ford Ranger ´00 3000cc. Gaman að sjá andstæðurnar. And-listamenn segja sumir...! Nei segi ég, fengu hann lánaðan.
Svo vil ég að lokum þakka kærlega fyrir þátttökuna í könnuninni hér til hliðar. Fimm búnir að kjósa á aðeins fjórum mánuðum. Ég er með tilfinningar.
Jæja, má ekki vera aðessu, vinnan kallar. En það er föstudagskvöld segja sumir..! First duty, then pleasure segi ég.
Skál fyrir G.Þ. productions.

laugardagur, maí 23, 2009

Basic Abuse

Á fallegum degi í Bratislava er óneitanlega girnilegt að fara í bíltúr.
Samband mitt við þennan bíl hefur einkennst af von, vonbrigðum, gríðarlegri gleði og aftur von. "hope is a good thing" stóð einhversstaðar.
Á leið minni einn daginn einhvert fór allt á versta veg. Gangtruflanir gerðu ítrekað vart við sig og allt í einu fór hljóðkúturinn af með miklum hvelli enda fór stuðarinn af í leiðinni. Reynsla mín af næturvörslu gagnaðist mér lítið sem ekkert en þó náði ég að hökta að næstu bensínstöð. Starfsmaður þar taldi púst & stuðara vera vandamál mitt og skildi ekkert í því að bíllinn vildi ekki í gang. Hann tengdi hljóðkútinn við þá staðreynd að bíllinn fór ekki í gang næsta hálftímann.
Ég vissi strax að ég yrði að kalla Dan til.....
Hann kom einsog hendi hefði verið veifað og gerði áhyggjur mínar að engu. Fór í gegnum allt rafkerfið og komst að sambandsleysi í kveikjudreifaranum. Í dag er ég staddur fjarri Bratislava en veit þó af varahlut bíðandi eftir mér við heimkomu.
Tók þessa til að ná mínu fram þegar varahluturinn var pantaður.Nú þegar Jóhanna hefur gert mann stolltan af landi og þjóð aftur fannst mér tilvalið að kíkja til Íslands. Því fjárfesti ég í flugmiða heim í lok mánaðar.
Í lokin vil ég óska Sigurði Þ. til hamingju með afmælið. Einsog gerst hafi í gær þegar hann lúbarði húðirnar með Basic Abuse.

miðvikudagur, apríl 15, 2009

Slovak Republic

Skellti mér einn daginn að skoða golfvöll hér í næsta nágrenni. Endaði inná æfingu hjá mínum mönnum í Hoba. Hef ekki enn farið á leik í íshokkí og deildin nýbúin. Áhugi minn efldist til muna enda ber ég náttlega nafn eins harðasta hokkí-leikmanns allra tíma ha.
Friðgeir félagi minn fór frammá mynd af póstkassa og lögregluþjóni. Ég hef ekki fundið sjálfstraust til að nálgast löggu en fann típískan póstkassa sem ung stúlka uppgötvaði á sínum tíma...
Hvíta húsið í Bratislava. Nýlega settist nýr forseti að eftir mikla baráttu við skelegga konu hér í borg. Unga fólkið er ekki sátt því sá nýi er snarkommunistaður...
Olíuskipti að hætti slóvakísks ground engineer. Ekki man ég við hvaða tækifæri ég tók þessa..
Robert(nágranni), ég(næturv.), Dan(samstarfsmaður&nágranni), Julio(félagi nágranna) og Nikki(fluffa). Scandinavískt garden partý að hætti okkar Dan. Héldumetta á forsetakosninganótt og skildum ekkert í dapri mætingu. Allt í áróðursplöggum í borginni en við óðum áfram á fáfræðinni. Mætingin batnaði þó eftir því sem leið á kvöldið og gleðin tók þau völd sem hún vildi taka.
Hittum einn tékkneskan á localnum sem var að eigin sögn búinn með áfengiskvótan en drakk kaffi einsog enginn væri morgunndagurinn.
Baba´s bikers hangout... Norður af Bratislava. Glöggir lesendur taka sjálfssagt eftir klassískum Renault 5.
Samstarfsmenn. Skeleggir, óhræddir og viðkunnanlegir. Allavega allajafna.
Næst verður fjallað um veturinn sem leið, samskipti kynjanna, Hörð, músík og jafnvel fjallað um Lýðvarpið.