þriðjudagur, febrúar 22, 2011

Farkostir, sparakstur & ýmsar vangaveltur

Verð á bensíni hækkaði hjá Skeljungi, N-1 og Olís í gærkvöldi og er hæsta verðið nú komið í 223,40 kr. per. lítra af 95 oktana bensíni.

Ja hvur andskotinn.

Ætli maður verði ekki að skoða aðra farkosti með hækkandi sólu. Nú gengur þetta ekki lengur. Skattastefna ríkisvaldsins og heimsmarkaðsverð neyða mann til umhugsunar.

Einsog flestum er kunnugt leitar næturvörður ávallt að lausnum í stað þess að láta bugast hmm.

- reiðhjól og fætur (grænir kostir) geta komið manni víða. Einnig bætir slíkt líkamlega heilsu og andlegt atgervi. Þó verður að viðurkennast að veðrátta á íslandi er ekki tilvalinn til slíkra samganga en næturvörður telur að þegar í vana er komið sé slíkt ekki endilega vandamál nema örfáa daga á ári. Gott getur verið að skottast í strætó á slíkum dögum.
Svitalykt getur reynst vandamál hjá reiðhjólamanninum og ekki síst þegar klæða þarf veður af sér. Allt til umhugsunar.
- vespa & strætó eru kostir sem vert er að googla.

Bifreiðanotkun er Íslendingum í blóð borin. Vinur minn Leó hefur sett í æðifínan og nánast tímalauan pistil til að draga úr kostnaði og auka endingu.

Hvort Leó sé fífl eða frelsari skal ósagt látið en hagsýni er óhætt að temja sér.