sunnudagur, september 04, 2011

Kiðjabergið

Hitti Óla á förnum vegi og hann var með fiskabúr í skottinu. Fannst það frásögu færandi. Hann var með einhverja útskýringu en ég heyrði hana ekki. Var of hissa á þessu öllu saman.
Fór í golf með þessum. Kiðjabergið heillaði okkur og við lékum allir rosa vel. Mér fannst Diddi bestur af þessum á myndinni en stendur kannski full nálægt boltanum. Óli var bezt klæddur í hollinu og Hrannar var glaðastur og kannski bestur.
Biggi Leifur þjónaði til borðs í hálfleik.
Hrannar var á bíl og enginn borgaði í bensín.
Hrannar var sá eini sem ekki var í stuttbuxum.
Óli er ekki með keppnisskap í einstaklings íþrótt.
Diddi kannaðist við gugguna í afgreiðslunni.

laugardagur, ágúst 13, 2011

Haust

Eftir Verzlunarmannahelgina er oft stutt í næturfrost, arineld og lestur bóka.

Í dag gerðu Liverpool jafntefli við Sunderland í fyrsta leik tímabilsins og KR urðu bikarmeistarar. Ég neyddist til að loka mig af og draga fyrir glugga og læsa útidyrahurðinni. Þarmeð bankaði veturinn uppá hjá næturverðinum með öllum þeim aragrúa kosta sem honum fylgja.

Verðbólgumarkmið, stýrivextir og kjararýrnun eru orð sem hafa einkennt landann síðustu misseri og hef ég ákveðið að láta ekki mitt eftir liggja í þjóðfélagsumræðunni.

Þegar sól fer lækkandi fara næturverðir á stjá.

þriðjudagur, apríl 12, 2011

þriðjudagur, febrúar 22, 2011

Farkostir, sparakstur & ýmsar vangaveltur

Verð á bensíni hækkaði hjá Skeljungi, N-1 og Olís í gærkvöldi og er hæsta verðið nú komið í 223,40 kr. per. lítra af 95 oktana bensíni.

Ja hvur andskotinn.

Ætli maður verði ekki að skoða aðra farkosti með hækkandi sólu. Nú gengur þetta ekki lengur. Skattastefna ríkisvaldsins og heimsmarkaðsverð neyða mann til umhugsunar.

Einsog flestum er kunnugt leitar næturvörður ávallt að lausnum í stað þess að láta bugast hmm.

- reiðhjól og fætur (grænir kostir) geta komið manni víða. Einnig bætir slíkt líkamlega heilsu og andlegt atgervi. Þó verður að viðurkennast að veðrátta á íslandi er ekki tilvalinn til slíkra samganga en næturvörður telur að þegar í vana er komið sé slíkt ekki endilega vandamál nema örfáa daga á ári. Gott getur verið að skottast í strætó á slíkum dögum.
Svitalykt getur reynst vandamál hjá reiðhjólamanninum og ekki síst þegar klæða þarf veður af sér. Allt til umhugsunar.
- vespa & strætó eru kostir sem vert er að googla.

Bifreiðanotkun er Íslendingum í blóð borin. Vinur minn Leó hefur sett í æðifínan og nánast tímalauan pistil til að draga úr kostnaði og auka endingu.

Hvort Leó sé fífl eða frelsari skal ósagt látið en hagsýni er óhætt að temja sér.