Í ljósi þess að Grímur átti afmæli fannst mér kominn tími á færslu. Þvílíkur kraftur og dugnaður sem hefur drifið þennan pjakk áfram. Hægt að læra endalaust af honum. Og einsog sést á meðfylgjandi mynd að þá er bræðrakærleikurinn aldrei langt undan. Til hamingju...

Skellti klassíska Renaultinum í olíuskipti. Þegar maður býr á meginlandi Evrópu er betra að vera á vel smurðum fák því maður veit aldrei hvert verður haldið næst. Borgir einsog Skopje, Krakáw og Lundur koma strax uppí kollinn.

Flugvirkinn ógurlegi virðist ætla svíkja einmana vin í austur Evrópu. Ég hef ósjaldan valhoppað um strætin hér "vitandi" að von væri á kauða á tónleika með okkar ástkæra DM.
"Hey, frænka mín er með barn á brjósti mar" eða hvað hann sagði. Vinslit segja sumir, sjáum til segi ég.

Tók þessa af tveimur listamönnum í Ford Ranger ´00 3000cc. Gaman að sjá andstæðurnar. And-listamenn segja sumir...! Nei segi ég, fengu hann lánaðan.

Svo vil ég að lokum þakka kærlega fyrir þátttökuna í könnuninni hér til hliðar. Fimm búnir að kjósa á aðeins fjórum mánuðum. Ég er með tilfinningar.
Jæja, má ekki vera aðessu, vinnan kallar. En það er föstudagskvöld segja sumir..! First duty, then pleasure segi ég.
Skál fyrir G.Þ. productions.