
laugardagur, janúar 24, 2009
föstudagur, janúar 23, 2009
föstudagur, janúar 16, 2009
Útgáfutónleikar Inga


Ingi stóð sig vel og allir virtust sáttir. Jafnvel ömmur hans.

Stemmningin magnaðist með hverju laginu og Hrannar var orðinn sveittur og vægast sagt ánægður með vin sinn frá Tulsatímanum.


þriðjudagur, janúar 13, 2009
Samgöngumál....
Áhugi minn á samgöngum hefur alltaf verið gríðarlegur. Á ferð minni um Bæjaraland í vikunni felldi ég tár.
Lestarstöðin í Hamborg..
Magnað að, því sunnar sem maður þvælist, því kaldara verður. Þakka Guði fyrir að ég fór ekki til Afríku eða eitthvað svoleiðis. Get ekki ímyndað mér gaddinn þar..!
Breyttir tímar: nú girnist maður veðráttuna á Íslandi en allt hitt er farið til fjandans.
En að samgöngum:
Flaug til Köben, tók lest í myrkri að hafi. Lestin fór um borð í ferju og svo á þurrt í Þýskalandi. Í Hamborg skipti ég um lest yfir í næturlest til Munchen sem var feikifín. Þar skipti ég svo aftur og hélt til Vínar via Salzbourg. Þarna var kominn dagur og litli næturvörðurinn var gríðarspenntur með myndavél útí öllum gluggum valhoppandi um gangana. Rankaði meira að segja við mér blístrandi. Bæjaraland heillaði mig gjörsamlega sem og Austurríki.
Þessi hundur býr í Vín..
Ekki hafði Leifur heitinn Muller það jafn gott í þessu landi. Frá Vín lenti ég svo í ógöngum enda ógurlegur kuldi úti sem neyddi mig til að taka ákvarðanir útí bláin.
Alltaf endaretta eins. Sit tiltölulega ferskur á skemmtilega hráu hótelherbergi mínu í Bratislava.
Niðurstaða: án samganga gerist fátt og neyðist ég því til að kaupa bíl. Á lestarferð minni sá ég girnilega staði sem…..

Magnað að, því sunnar sem maður þvælist, því kaldara verður. Þakka Guði fyrir að ég fór ekki til Afríku eða eitthvað svoleiðis. Get ekki ímyndað mér gaddinn þar..!
Breyttir tímar: nú girnist maður veðráttuna á Íslandi en allt hitt er farið til fjandans.

Flaug til Köben, tók lest í myrkri að hafi. Lestin fór um borð í ferju og svo á þurrt í Þýskalandi. Í Hamborg skipti ég um lest yfir í næturlest til Munchen sem var feikifín. Þar skipti ég svo aftur og hélt til Vínar via Salzbourg. Þarna var kominn dagur og litli næturvörðurinn var gríðarspenntur með myndavél útí öllum gluggum valhoppandi um gangana. Rankaði meira að segja við mér blístrandi. Bæjaraland heillaði mig gjörsamlega sem og Austurríki.

Ekki hafði Leifur heitinn Muller það jafn gott í þessu landi. Frá Vín lenti ég svo í ógöngum enda ógurlegur kuldi úti sem neyddi mig til að taka ákvarðanir útí bláin.

Alltaf endaretta eins. Sit tiltölulega ferskur á skemmtilega hráu hótelherbergi mínu í Bratislava.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)