mánudagur, júlí 30, 2007

Spurt er um borg


eða bara land/þjóð. Ansi fögur,
En hver er hún?

föstudagur, júlí 27, 2007

Hafnarfjörður


Vildi bara benda fólki á fegurð Hafnarfjarðar. Þarna ala ansi margir manninn og það við hreint frábærar aðstæður. Hafnfirðingar hafa ekkert í aðra kaupstaði að sækja. Þarna blómstrar menningin og hefur atvinnulífið aldrei verið fjölbreyttara. Vonandi verður þetta ykkur vakning og ástæða til flutnings.
Mér fannst ekki taka því að spyrja um nafn bæjarins, Teddi hefði getað það um hæl.
Ps. Þegar gleðisveitin Partý saung um skip er sigldu á sænum var víst verið að syngja um fögur þriðjudagskvöld í Hafnarfirði. Vel ort það.

föstudagur, júlí 20, 2007

Hver eretta?


Mér fannst við hæfi að spyrja þegar ég sá hve þungbúið var úti í dag. Kom léttur haust-gustur yfir mig með tilheyrandi hamingjutilfinnigu þegar ég rankaði við mér í morgun og heyrði í rigningu.

laugardagur, júlí 14, 2007

Hornstrandir

Ömurleg viðbrögð við pistli Frank Abegnale hafa leikið mig grátt í vikunni.
Ég ætlaði að koma mér í næturgírinn en er nú ekki að finna mig.



  • Jói Gé vill meina að nýi Deus diskurinn sé góður.

  • Sumarið er hálfnað.

  • Skilst að Grímur fari í byrjun sept.

  • Leiðinlegt hvernig farið hefur fyrir M.F.C.

Á meðan Óli Stef kaupir sér Corollu ´98 kaupir Sigurður Þ. sér BMW ´03. Fimm árum yngri eðalbíl. Ótrúlegur náungi. Sjálfur hef ég lagt meira uppúr hinu andlega og verið í nánu sambandi við B.A.Hauksson. Hann hefur kennt mér margt. Í dag líður mér bezt að hjálpa náunganum og rækta þarmeð minn innri mann. Tek reiðhjól framyfir hinar mengunarferjurnar og stunda yoga. Vonandi getið þið hin lært af okkur Birni!





Dæmi um mann sem ætti að leita til okkar Björns.

Jæja, ég get ekki meir og munið að vökva gróðurinn ásamt sálina.
Ps. Maður sumarsins er tvímælalaust Hössy, fagmennskan út í gegn.

þriðjudagur, júlí 10, 2007

Júlí eyðist upp

Mæli með þessum fyrirlestri fyrir þá sem vilja vera alvöru menn....

mánudagur, júlí 02, 2007