þriðjudagur, maí 22, 2007

fimmtudagur, maí 17, 2007

Rauðbristingur


Væri gaman að vita hvort Hössi viti hversu mörgum eggjum lundinn verpir í hvert skipti. Jú jú, hann gæti googlað en það er harla ólíklegt.

mánudagur, maí 14, 2007

Enn ein fjárans spurningin

Ég hvet fólk til að giska ekki. Drepum keppnina í eitt skipti fyrir öll...

En hver er borgin..?
Ekki er spurt um byggingu heldur borg.

miðvikudagur, maí 09, 2007

Óli Stef gullsmiðja

Þá er sumarið komið hjá næturverði. Sá til Hringandar í vikunni og gat ekki stillt mig um að taka mynd á göngu minni um Álftanesið.
Það þýðir víst lítið að spyrja á síðunni því Hössa eru fuglar í blóð bornir. Hann rúllaði upp síðustu spurningakeppni og leiðir könnun næturvarðar. Lesendur virðast telja að sumarið 2007 verði enn einu sinni eign Hössa.
Nafn er komið á verzlun Ólafs. Hann ætlar greinilega að hampa nafni sínu enn frekar. Það er ljóst að nafngiftin mun hjálpa honum gríðarlega í frekari landvinningum á Myspace síðu hans og mun hann jafnvel veita Hössa harða keppni í liðnum:
leikmaður sumarsins 2007.