Séð í norðvestur yfir Árskógssand, við vestanverðan Eyjafjörð, í átt að Dalvík í fjarska.

Þau í Ársskógssandi liggja ekki í dvala einsog svo margir Norðlendingar gera á veturna. Nú hefur ný bruggverksmiðja verið sett á laggirnar og mun hún framleiða Kalda, hollan bjór sem ekki inniheldur rotvarnarefni og geymist aðeins í mánuð eða svo. Það verður nú seint vandamál að ég hygg. Vil ég bjóða Kalda velkominn og hvet þig til að gefonum sjéns.

Ungur veiðimaður sem mér dettur ekki í hug að nefna skellti sér á vígsluathöfn Kalda og setti í nokkra laxa. Að sögn veiðimannsins er Kaldi góður. En að öðru og mikilvægara

Höddi365 sem næturvörður fær seint leið á að skrifa um hafði samband við næturvörð vegna bílakaupa. Ég setti saman tvo og tvo þegar Höddi er annars vegar og grunaði að um væri að ræða tryllitæki. Eftir stutt samtal komst ég að því að Höddi hyggur á BMW kaup, geri aðrir betur. Hrannar hvað!! Ekki mun líða á löngu þar til Höddi muni geisast um á þessum fagra eðalvagni sem myndin er af og segir mér sá hugur að hann muni ekki vera án maka mikið lengur hvort sem honum líkar það betur eða ver. Líklegast hefur bifreið Didda365 samstarfsmanns hans heillað hann. Þetta kennir manni að allt er hægt með eljusemi og kæruleysi að vopni svo ekki sé minnst á umburðalyndi.

Spurt er um virkjun. Allavega sjáið þessa virkjun eða hvað þetta heitir.